John Terry: Vonast til að verða fyrirliði enska landsliðsins á ný Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. maí 2010 23:00 John Terry. Mynd/AP
John Terry, fyrirliði Chelsea, lifir enn í voninni um að fá að bera aftur fyrirliðabandið hjá enska landsliðinu en hann missti það í febrúar eftir að enska slúðurpressan smjattaði á fréttum um framhjáhald hans. John Terry átti að vera fyrirliði enska landsliðsins á HM í Suður Afríku í sumar en landsliðsþjálfarinn Fabio Capello tók bandið af Terry og það mun vera Manchester United-maðurinn Rio Ferdinand sem mun leiða enska landsliðið út á völlinn á mótinu. „Það var augljóslega mjög erfitt fyrir mig að sætta mig við þetta eftir fundinn með landsliðsþjálfarunum," sagði John Terry um stutta fundinn með Capello þar sem hann tilkynnti honum að hann væri ekki lengur fyrirliði. „Ég bar virðingu fyrir ákvörðun hans og sagði honum að það myndi ekkert breytast hjá mér. Ég myndi leggja mig áfram hundrað prósent fram. Ég tók þetta á herðarnar og hélt bara áfram," sagði Terry. „Það eina sem ég get gert er að spila vel, reyna að tryggja mér sæti í HM-hópnum og vonandi fæ ég tækifæri einhvern daginn til þess að bera fyrirliðabandið á ný," sagði Terry.
Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira