Segir afstöðu Vinstri grænna það sorglegasta á ferlinum 26. febrúar 2010 18:52
Virkjana á Hengilssvæðinu gætu beðið sömu örlög og virkjana í neðri Þjórsá, en í forystusveit Vinstri grænna er fullyrt að skipulagsferli þeirra sé ólöglegt. Bæjarstjóri Ölfuss segir afstöðu Vinstri grænna það sorglegasta sem hann hafi orðið vitni að á ferlinum. Tæpum mánuði eftir að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra stöðvaði virkjanir í neðri Þjórsá, með því að neita að staðfesta aðalskipulag, benda tveir aðrir áhrifamenn Vinstri grænna á að samskonar rök kunni að gilda um virkjanir á Hengilssvæðinu. Í grein í Fréttablaðinu síðastliðinn miðvikudag kemur fram það sjónarmið Atla Gíslasonar alþingismanns og Bergs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra þingflokks Vinstri grænna, að rétt eins og Landsvirkjun hafi greitt fyrir skipulagsvinnu við Þjórsá, þá hafi Orkuveita Reykjavíkur með samkomulagi við Sveitarfélagið Ölfus í reynd keypt sér skipulag fyrir virkjanir á Hengilssvæðinu. En óttast bæjarstjóri Ölfuss að virkjanaáform þar hljóti sömu örlög í höndum umhverfisráðherra og gerðist við Þjórsá? Ólafur Áki Ragnarsson kveðst ekki sjá rök fyrir því og hann hafi heldur ekki séð rök fyrir stöðvun skipulags við neðri hluta Þjórsá. "Ég held bara að fólk sé komið langt langt út fyrir skynsemismörk í þessu," segir Ólafur Áki. Bæjarstjórinn kveðst undrast markmið forystumanna Vinstri grænna á sama tíma og sveitarstjórnarmenn séu að reyna að byggja upp atvinnulífð. Hann segir þingmenn og framkvæmdastjóra Vinstri grænna rífa niður það sem verið sé að reyna að vinna og brjóta á bak aftur fólk sem sé að reyna að standa á bak við atvinnuuppbyggingu í landinu og snúa hjólum atvinnulífsins við. "Þetta er nú svona það sorglegasta sem maður hefur orðið vitni að síðan ég byrjaði í sveitarstjórnarmálum fyrir 24 árum," segir Ólafur Áki.
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Árni skólameistari heldur embættinu Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Erlent Fleiri fréttir Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Eldur kom upp í vélarúmi báts Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Guðbjörg með flest atkvæði og flestir vilja sameinast Stykkishólmi Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Ein breyting í sveitarstjórn Kaldrananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Sjá meira