Innlent

Frjálslega farið með viðkvæm persónugögn

Evrópskar persónuverndarstofnanir segja athugun á meðferð persónuupplýsinga í fjarskiptagögnum í álfunni hafa leitt í ljós að varðveisluskyldu á fjarskipta- og vefumferðarupplýsingum sé ekki réttilega framfylgt í ríkjum Evrópusambandsins.

„Meðal annars hafi komið í ljós að upplýsingar hafi verið varðveittar of lengi, of mikið hafi verið varðveitt af upplýsingum og þeim hafi verið miðlað of frjálslega," segir í frétt Persónuverndar af málinu. Lesa má úr ályktun stofnananna að Ísland hafi ekki verið meðal þeirra landa sem könnuð voru í þessu samhengi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×