Halvtreds hvad for noget? Óli Tynes skrifar 16. júlí 2010 14:24 Seðillinn umdeild. Eins og allir sjá er þetta halvtresindtyve sem eru 50.
Danir og Norðmenn eru komnir í hár saman yfir nýjum peningaseðli sem gefinn hefur verið út í Danmörku. Stærsta dagblað Noregs, Verdens gang húðskammar Dani fyrir þá heimsku að skilja ekki þann norska sið að setja einfaldlega orðið tíu á eftir til dæmis 3-4 eða 5 þegar talið er í tugum í rituðu máli. Gremja Verdens Gang er til komin vegna þess að á nýja danska 50 króna seðlinum stendur „halvtreds kroner" en ekki „femmti kroner" eins og á fyrri seðlunum. Þetta telur blaðið að geti valdið norskum ferðamönnum í Danmörku ómældum vandræðum. Verdens gang fer niðrandi orðum um íbúa „pönnukökulandsins" og vitsmuni íbúa þess. Danir taka þessu náttúrlega ekki þegjandi. Í grein í Berlingske Tidende er spurt hvort hinum norsku túristum sé um megn að skilja töluna 50 sem einnig er á seðlunum. Berlingske segir að Norðmönnum sé viss vorkun. Það þurfi sjálfsagt aðeins meiri hæfileika til abstrakthugsunar og meiri menntun en þeir hafi til skilja hin ofureinföldu rök fyrir „halvtreds." Eins og allir sæmilega skynsamir menn viti sé þetta stytting á „halvtredsindtyve" eða hálfur þriðji (semsagt tveir og hálfur) sinnum tuttugu. Þetta geri 50. Með þessa vitneskju að vopni megið þið svo lesendur góðir skemmta ykkur við að ráða framúr öðrum dönskum tölum eins og „tres, halvfjerds, firs og halvfems." Góða helgi.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Fleiri fréttir Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sjá meira