Fjöldi skipa festist í Eystrasalti Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. mars 2010 06:59 Eitt skipanna sem situr fast. Mynd/ AFP.
Um 50 skip hafa setið föst í ís í Eystrasalti frá því í gær. Fjögur skip hafa losnað með hjálp ísbrjóta. Sum þessara skipa sigldu í strand milli Stokkhólms og Álandseyja en önnur eru föst norðar, í Helsingjabotni. Sænskir hafnarstarfsmenn fullyrða að mörg þeirra skipa sem þarna sitja föst verði ekki losuð næstu klukkutímanna. Þeir segja að enginn um borð í skipunum hafi slasast og að það sé ekki verið að reyna að finna leiðir til þess að ná fólki úr skipunum. Hins vegar hefur viðbúnaðarstigið verið hækkað og björgunarmenn bíða nú eftir fyrirmælum ef eitthvað breytist. Amorella, farþegaferja með nærri 1000 manns um borð, losnaði úr ísnum í nótt, að því er Associated Press fréttastofan fullyrðir. Þrjú skip losnuðu í gær. Bæði Svíar og Finnar eru með sérstaka ísbrjóta á þessum slóðum til þess að hjálpa til við að losa skipin. Svíinn Jonas Lindvall, sem hefur stjórnað björgunaraðgerðum, sagði í samtali við Sænska Ríkisútvarpið að vanalegast væri ísinn ekki til vandræða á þessum slóðum. Hins vegar hefði verið mjög hvasst þarna að undanförnu, allt upp í 20 m/s og því hafi ísinn hreyfst mjög ört að undanförnu.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira