Innlent

Eldur í hreyfli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Flugvélin var að koma til lendingar á Akureyri. Mynd/ Kristján.
Flugvélin var að koma til lendingar á Akureyri. Mynd/ Kristján.
Flugmaður lítillar Twin Otter flugvélar þurfti að drepa á öðrum hreyfli vélarinnar áður en hann lenti á Akureyrarflugvelli nú á sjötta tímanum. Vélin var að koma frá Grænlandi með tvo menn um borð.

Grunur lék á að eldur hefði kviknað í hreyfli vélarinnar. Vélin lenti heilu og höldnu á flugvellinum á Akureyri klukkan korter í sex.

Rannsóknarnefnd flugslysa er nú með atvikið til skoðunar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×