Enski boltinn

Drogba: Verðskuldaði ekki rautt

Elvar Geir Magnússon skrifar
Didier Drogba fær rautt.
Didier Drogba fær rautt.

Didier Drogba, sóknarmaður Chelsea, telur sig ekki hafa átt skilið að fá brottvísun í leiknum gegn Inter í gær. Hann er þó meira ósáttur við úrslit einvígisins og að Chelsea sé úr leik í Meistaradeildinni.

„Það er erfitt að kyngja þessu. Ég steig vissulega á kálfann á honum en það var óviljaverk og verðskuldaði ekki rautt spjald," sagði Drogba sem viðurkenndi þó að þetta atvik hefði ekki ráðið úrslitum leiksins.

„Við spiluðum ekki eins og við ætluðum. Inter náði að koma í veg fyrir að okkur tækist að spila okkar leik og því fór sem fór. Nú verðum við að einbeita okkur að deildinni og FA bikarnum."

Drogba fékk rauða spjaldið fyrir brot á Thiago Motta í leik leiksins í gær. Inter fer áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar með 3-1 sigri samtals.

Smelltu hér til að sjá myndband af Drogba fá rautt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×