Tryggir Grikkjum svigrúm 27. mars 2010 05:00 George Papandreou
AP „Bæði Evrópa og Grikkland koma sterkari út úr þessari kreppu,“ segir George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, ánægður með að leiðtogar sextán Evrópusambandsríkja hafi ákveðið að koma Grikklandi til hjálpar í fjárhagsvandræðunum. Papandreou segir reyndar langt í að Grikkir komist út úr erfiðleikum sínum, en samkomulag evruríkjanna sextán gefi landinu svigrúm til að vinna sig út úr vandanum með ströngum aðhaldsaðgerðum heima fyrir. Á síðasta ári var fjárlagahalli Grikklands 12,7 prósent, en það er fjórum sinnum meira en reglur Evrópusambandsins leyfa. Í tengslum við leiðtogafund Evrópusambandsins í Brussel samþykktu evruríkin sextán, á sérstökum neyðarfundi á fimmtudag, að veita Grikkjum lán ef aðrir lánamöguleikar lokast. Í gær styrktist evran nokkuð gagnvart dollar og vaxtamunur grískra og þýskra ríkisskuldabréfa minnkaði, sem er til marks um að heldur meira traust ríki nú á Grikklandi á fjármálamörkuðum. Ýmislegt fleira var rætt á leiðtogafundi Evrópusambandsins, sem lauk í gær, þar á meðal loftslagsmálin og sáu leiðtogarnir sig neydda til að skipta um aðferð í alþjóðadeilum um þau. Í staðinn fyrir að þrýsta á önnur ríki um að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda ætla þau að leggja áherslu á breytingar í smærri skrefum. - gb
Mest lesið Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Innlent Fleiri fréttir Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Sjá meira