Chelsea tók toppsætið af United með 2-1 sigri á Old Trafford Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2010 13:34 Joe Cole skoraði eina mark fyrri hálfleiks. Mynd/AP
Chelsea vann 2-1 útisigur á Manchester United í uppgjöri toppliða ensku úrvalsdeildarinnar á Old Trafford í Manchester. Chelsea-maðurinn Joe Cole skoraði eina mark fyrri hálfleiks og varamennirnir Didier Drogba (Chelsea) og Federico Macheda (United) skoruðu síðan sitthvort ólöglega markið í seinni hálfleiknum. Manchester pressaði mikið í lokin en Chelsea-vörnin hélt út og fór heim með öll stigin þrjú. Chelsea-liðið mætti miklu grimmara til leiks og var mun betra í fyrri hálfleikinn með Florent Malouda í fararbroddi. Það var allt annað að sjá Manchester United liðsins í seinni hálfleiknum en góð skipting hjá Carlo Ancelotti, stjóra Chelsea, skóp annað markið fyrir Chelsea og eftir það varð þetta of erfitt fyrir heimamenn. Chelsea komst í 1-0 á 20. mínútu leiksins. Florent Malouda fór framhjá að minnsta kosti þremur varnarmönnum Manchester United áður en hann lagði boltann út í markteiginn þar sem Joe Cole tók hann með hælnum og setti hann í fjærhornið. Didier Drogba kom inn á sem varamaður á 69. mínútu og kom Chelsea í 2-0 tíu mínútum síðar eftir að hafa fengið sendingu inn fyrir vörnina frá landa sínum og öðrum varamanni, Salomon Kalou. Drogba var þó greinilega rangstæður þegar hann fékk boltann og markið átti því ekki að standa. Varamennirnir hjá Manchester United voru ekki lengi að minnka muninn þegar Federico Macheda skoraði eftir undirbúning frá Nani aðeins tveimur mínútum eftir mark Drogba. Boltinn fór af Peter Cech og líklega í hönd Macheda og þaðan lak hann inn fyrir marklínuna. Chelsea er þar með 74 stig eða tveimur stigum meira en Manchester United þegar fimm leikir eru eftir af tímabilinu. Þetta var aðeins annað tap Manchester United á Old Trafford á tímabilinu.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira