Langmest framleitt af hassi í Afganistan 3. apríl 2010 06:00 Þrátt fyrir að árum saman hafi uppskerur verið eyðilagðar í Afganistan hefur framleiðsla fíkniefna ekkert dregist saman. nordicphotos/afp
Í Afganistan er ekki einungis framleitt meira ópíum en í öðrum löndum, heldur eru Afganir nú einnig orðnir afkastamestir ríkja heims í framleiðslu á hassi. Sameinuðu þjóðirnar telja að á ári hverju séu 10 til 24 þúsund hektarar af landi notaðir undir kannabisrækt. Úr þessu eru svo framleidd 1.500 til 3.500 tonn af hassi árlega. „Þótt önnur lönd rækti enn meira af kannabis, þá er það þessi ótrúlega mikla framleiðni úr afgönsku kannabisuppskerunni sem gerir landið að stærsta hassframleiðanda heims,“ segir Antonio Maria Costa, yfirmaður fíkniefna- og sakamálaskrifstofu Sþ. Í Afganistan tekst bændum að vinna 145 kíló af hassi úr kannabisuppskeru af einum hektara, en í Marokkó, svo dæmi sé tekið um annað afkastamikið hassframleiðsluland, er afkastagetan rétt um 40 kíló af hassi á hektara. Nú er svo komið að veruleg hassframleiðsla er í 17 af 34 héruðum Afganistans. Mest er þetta í suðurhluta landsins, þar sem átök hafa verið hörð og ítök talibana sterkari en annars staðar í landinu. Árum saman hefur verið reynt að uppræta ópíumrækt í landinu, en með takmörkuðum árangri. Víða hafa bændur brugðist við með því að rækta kannabis í staðinn fyrir ópíum. Costa segir að afganskir bændur kjósi þó fremur að framleiða ópíum en hass, og rækti því kannabis frekar á sumrin þegar vatn er af skornum skammti. Í Afganistan eru framleidd um 90 prósent af öllu því ópíumi sem selt er í heiminum. Þessi búgrein afganskra bænda hefur verið notuð til að fjármagna uppreisnarhernað talibana. Hún hefur einnig átt sinn þátt í að viðhalda útbreiddri spillingu meðal stjórnvalda. „Öll fíkniefni í Afganistan, eru skattlögð af þeim sem ráða á staðnum, og útvega uppreisnarhópum þannig viðbótartekjulind,“ segir Costa. - gb
Mest lesið Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Innlent Fleiri fréttir Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Sjá meira