Innlent

Milljarðar króna töpuðust á síðasta ári

Sighvatur Bjarnason VE Uppsjávarskipin veiddu nær allan makrílkvótann á rúmum mánuði í fyrra. Takmarka þurfti veiðar til að gera ráð fyrir meðafla í veiðum á norsk-íslenskri síld.fréttablaðið/óskar
Sighvatur Bjarnason VE Uppsjávarskipin veiddu nær allan makrílkvótann á rúmum mánuði í fyrra. Takmarka þurfti veiðar til að gera ráð fyrir meðafla í veiðum á norsk-íslenskri síld.fréttablaðið/óskar

Það er einróma skoðun hagsmunaaðila í sjávarútvegi að stjórn, eða stjórnleysi, makrílveiðanna árið 2009 hafi verið sóun á verðmætum. Þetta kom fram á málstofu um veiðar og vinnslu á makríl sem sjávarútvegsráðuneytið stóð fyrir fyrir skömmu.

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, telur skipulag veiðanna í fyrra hafa valdið því að 4,5 milljörðum króna minna fékkst fyrir afurðirnar en ef útgerðir hefðu getað stýrt veiðunum sjálfar.

Otto James-Olsen, fagstjóri uppsjávarveiða hjá Samtökum fiskvinnslustöðva í Noregi, var sérstakur gestur málstofunnar. Hann rakti samskipti Norðmanna og Evrópusambandsins um makrílveiðar, en sem kunnugt er hafa þessir aðilar tekist hart á um veiðiréttindi. Hann kom inn á hugsanlega þátttöku Íslands í stjórn veiðanna og sagði að sú aflahlutdeild, sem Ísland kæmi til með að fá ef samningar tækjust, yrði tekin af þeim 572.000 tonna heildarkvóta sem ákveðinn hefði verið fyrir árið 2010.

Steinar Ingi Matthíasson, skrifstofustjóri sjávarútvegsráðuneytisins, sagði þjóðréttarlega stöðu Íslands ótvíræða í þessu samhengi. Ísland hefur þekkst boð um þátttöku í strandríkjafundi um makrílveiðar í næsta mánuði. - shá






Fleiri fréttir

Sjá meira


×