Innlent

Forseti afhendir Nýsköpunarverðlaunin í dag

MYND/Hrönn

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag klukkan fjögur. Í tilkynningu frá embættinu segir að markmið verðlaunanna sé að heiðra námsmenn sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt eru af Nýsköpunar-sjóði námsmanna.

Fimm verkefni eru tilnefnd til verðlaunanna í ár:

  1. Arfgeng heilablæðing - Ný tilgáta um sjúkdómsmyndun byggð á rannsókn á genatjáningu sem unnið er af Birni Þór Aðalsteinssyni.
  2. Fornleifar á eyðidal: Skráning og kynning á fornum minjum í Seljadal sem unnið er af Ástu Hermannsdóttur.
  3. Sjálfvirki lestrar- og sýndarkennarinn sem unnið er af Gunnari Steini Valgarðssyni.
  4. Súrefnismettunar- og hjartsláttarnemi sem unnið er af Ásgeiri Bjarnasyni.
  5. Arctic snack - kartöfluflögur og sölsnakk sem unnið er af Eddu Jónu Gylfadóttur, Guðrúnu Björk Jónsdóttur, Helgu Björgu Jónasardóttur og Guðrúnu Hjörleifsdóttur.

Við athöfnina munu forseti Íslands, formaður stjórnar Nýsköpunar-sjóðs námsmanna og formaður dómnefndar flytja ávörp.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×