Vonast er eftir fundi síðla dags í London 2. mars 2010 06:00 samþykkt á þingi Breytingalögin voru samþykkt á Alþingi rétt fyrir áramót. Þjóðinni gefst kostur á að segja sitt á laugardag. Reynt er að semja um betri kjör á láninu í London.fréttablaðið/stefán
Bjartsýni ríkir um það í stjórnkerfinu að til formlegra funda komi hjá Bretum og Íslendingum í London. Íslenska sendinefndin frestaði för sinni heim í gær. Vonast er eftir fundi síðdegis í dag. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra var í samskiptum við Paul Myners, bankamálaráðherra Breta, seinni partinn í gær. Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, er í London. Hann sagði menn hafa rætt saman og skipst á gögnum í gær. „Við fengum í dag [gær] viðbrögð við lauslegum hugmyndum sem við höfum sett fram og þau viðbrögð gáfu tilefni til að fresta heimför." Guðmundur segir stöðuna verða metna í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ganga hugmyndirnar út á að Íslendingar greiði höfuðstól skuldarinnar og fjármögnunarkostnað. Þar er reiknað með vaxtaviðmiði, föstum alþjóðlegum vöxtum, og vaxtaprósentum þar ofan á. Hver sú prósenta verður er meðal þess sem verið er að semja um. Samkvæmt heimildum er þó um mun lægri vaxtakostnað að ræða en gert er ráð fyrir í fyrri samningi. Bretar krefjast þess að Íslendingar greiði þann kostnað sem þeir sjálfir hafa orðið fyrir. Þeir sjóðir sem lánuðu Íslendingum fé til að standa skil á lágmarkstryggingu innstæða, 20.887 evrum, þurftu að fjármagna sig og hafa allir borið kostnað við það. Þann kostnað vilja Bretarnir fá til baka. Hollendingar fylgjast átekta með en eru ekki í London. Guðmundur segir að það geti breyst í dag. „Okkar samskipti hafa verið við Bretana, en nú getur vel verið að það breytist. Það er ekki loku fyrir það skotið að það gætu orðið einhverjir fundir síðla á morgun [í dag]." Samkvæmt nýrri könnun Gallup munu 74 prósent landsmanna greiða atkvæði gegn því að frumvarp um breytingar á lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave taki gildi, í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá þessu. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á þingi í gær að þjóðaratkvæðagreiðslan yrði haldin. Hún spurði þó hvort ekki væri um hálfgerðan hráskinnaleik að ræða ef betri samningar liggi fyrir. Verði af fundum og skrifað verði undir betri kjör munu stjórnarflokkarnir fara fram á það við stjórnarandstöðuna að fallið verði frá atkvæðagreiðslunni. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Erlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Fleiri fréttir Vilja færa fjögur þingsæti í Suðvesturkjördæmi Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Sleppt að lokinni yfirheyrslu vegna hótelbruna Ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins Aðalmeðferð hafin í Dettifossmálinu Telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu Skjálftahrina suðvestur af Eldey Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Réðst á ökumann með slökkvitæki Ingólfur leysir Baldur af Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Ekki víst að asbestmengun hafi borist með reyknum Skipuleggjandi smygls handtekinn á Spáni og ákærður hér Fiskikóngurinn og Háskólinn rannsaka skötu Eftir því sem lengra líður eykst óvissan Stór skjálfti í Langjökli fannst víða Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Fangar þurfi að fylgja samþykktri dagskrá í dagsleyfum Segir fækkun útlendinga sýna að stjórnvöld nái tökum á innflytjendamálum Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Sjá meira