Enski boltinn

Real Madrid er enn ríkasta félag heims

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Real Madrid er ríkasta félag heims sjötta árið í röð en Manchester United er aftur á móti fallið í þriðja sætið á listanum.

Þetta kemur fram í árlegri könnun Deloitte um fjármál knattspyrnufélaga.

Í skýrslunni er hermt að tekjur Real Madrid hafi aldrei verið meiri en núna. Í skýrslunni segir að Real Madrid og Barcelona hafi náð umtalsverðu forskoti á önnur félög og ekki sé hægt að sjá annað en að þau verði í efstu tveim sætunum næstu árin.

Topp 20 listinn hefur lítið breyst frá því fyrra. Werder Bremen og Man. City koma aftur á móti inn á listann í stað Stuttgart og Fenerbahce.

Áhugavert er að sjá 1. deildarlið Newcastle inn á þessum lista.

20 ríkustu félög heims:

1. Real Madrid, Spánn

2. Barcelona, Spánn

3. Manchester United, England

4. Bayern Munich, Þýskaland

5. Arsenal, England

6. Chelsea, England

7. Liverpool, England

8. Juventus, Ítalía

9. Inter Milan, Ítalía

9. AC Milan, Ítalía

11. Hamburg, Þýskaland

12. AS Roma, Ítalía

13. Lyon, Frakkland

14. Marseille, Frakklan

15. Tottenham, England

16. Schalke, Þýskaland

17. Werder Bremen, Þýskaland

18. Borussia Dortmund, Þýskaland

19. Manchester City, England

20. Newcastle, England






Fleiri fréttir

Sjá meira


×