Birta þarf upplýsingar um styrkþega 2. mars 2010 05:00 Landbúnaður Eini þáttur íslensks landbúnaðar sem er í samræmi við reglur ESB er lífrænn landbúnaður en 1% íslenskra bænda tengjast lífrænum landbúnaði, að því er segir í greiningarskýrslu ESB um Ísland.
Í greiningarskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er fundið að því að markvissa stefnu í málefnum dreifbýlisins skorti á Íslandi. Miklar aðfinnslur eru gerðar við stjórnsýslu landbúnaðarmála, ekki síst það að stjórnvöld feli Bændasamtökunum lykilhlutverk í stjórnsýslu málaflokksins og engar opinberar upplýsingar séu aðgengilegar um það hverjir njóta landbúnaðarstyrkja. Fjölmargar stuðningsaðgerðir stangist á við reglur ESB um samkeppni og ríkisstyrki. Beingreiðslur íslenska ríkisins til bænda séu ekki í samræmi við ESB-reglur; ESB miðar nú við að 85 prósent ríkisstyrkja séu óháð framleiðslumagni bænda. Það hlutfall á að auka í 93 prósent fyrir árið 2013, samkvæmt endurskoðaðri landbúnaðarstefnu ESB. Mikið vantar á það hlutfall hér á landi enda eru styrkir að langmestu leyti framleiðslutengdir. „Íslendingar munu þurfa að koma upp upplýsingakerfi fyrir móttakendur landbúnaðarstyrkja undir sameiginlegri stjórn og tryggja þarf að árlega verði birtar upplýsingar um nöfn þeirra sem njóta styrkjanna,“ segir í skýrslunni. Enn fremur segir að landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið sé of veikburða til þess að sinna stjórnsýslu landbúnaðarmála. Um 40 starfsmenn þess sinni stefnumótunarvinnu en framkvæmdinni hafi verið úthýst til hagsmunasamtaka bænda. Bændasamtökin hafi meðal annars það hlutverk að greiða ríkisstyrki til einstakra bænda. Öll tölfræði um íslenskan landbúnað sé vanþróuð. Í mörgum tilfellum byggist hún á áætluðum stærðum frekar en rauntölum. Í heild sé íslensk landbúnaðarlöggjöf ekki í samræmi við löggjöf Evróusambandsins og þarfnist mikillar aðlögunar. Varðandi dreifbýlisstefnu segir í skýrslunni að engin stofnun beri heildarábyrð á byggðaþróun og byggðastuðningi. Heildarstefnu sem svari til stefnu Evrópusambandsins í málaflokknum sé ekki fylgt. Hins vegar sé unnið að fjölmörgum smærri áætlunum og aðgerðum innan fjölmargra sjóða og stofnana. Nauðsynlegt verði að setja á fót stofnun sem annist greiðslur dreifbýlisstyrkja. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Innlent „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Innlent Hélt ræðu gráti nær Innlent Þrír skotnir af leyniskyttu við byggingu ICE í Dallas Erlent Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Innlent Rafmagn aftur komið á í öllum hverfum Innlent Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Innlent „Þetta var óvenjuleg ræða“ Innlent Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Verða bílveikari í rafbílum Innlent Fleiri fréttir Skrítið að vita af ósprunginni handsprengju í næstu götu Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Löng bið Haraldar, umdeild kynjafræði og íslenska í útrýmingarhættu Borgin leggur bílstjórum línurnar Rafmagn aftur komið á í öllum hverfum Hélt ræðu gráti nær Gripnir glóðvolgir með íslensk lundaegg í Hollandi Stúdentar leggjast gegn sameiningunni Ekki slys á gangandi vegfaranda í „hættulegum beygjuvösum“ í tuttugu ár Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Nýtt stjórnsýslustig framhaldsskóla: „Þetta er eins og vont trúðaleikrit“ Bein útsending: Gervigreind og vísindamiðlun Gular viðvaranir vegna úrkomu og aukin skriðuhætta Aðferðum svipi til þeirra hjá Quang Le Leiðbeinandinn á Múlaborg í gæsluvarðhaldi í mánuð í viðbót Jarðvarmi enn mikilvægari en áður var talið Hyggst leggja af jafnlaunavottun í núverandi mynd Framkvæmdum að ljúka á gatnamótum sem gera Árbæinga gráhærða Bein útsending: Jarðhiti jafnar leikinn Látinn laus en rannsókn enn í fullum gangi „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Sýknudómur í máli Aðalsteins gegn Páli stendur Séra Yrsa Þórðardóttir er látin Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Áflog og miður farsæl eldamennska Verða bílveikari í rafbílum „Þetta var óvenjuleg ræða“ Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Sjá meira