Innlent

Þriggja ára áætlun í Reykjavík - engar skattahækkanir fyrirhugaðar

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, mælir í dag fyrir frumvarpi að þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar fyrir árin 2011-2013. Í tilkynningu frá borginni segir að áætlunin byggi á grunni fjárhagsáætlunar ársins 2010 og fylgi þeirri stefnumörkun sem þar var sett um að áfram verði staðinn vörður um grunnþjónustu við borgarbúa og forgangsraðað í þágu þjónustu við börn og ungmenni og velferðarþjónustu.

„Engar skattahækkanir eru fyrirhugaðar í Reykjavík samkvæmt þriggja ára áætluninni, hvorki er gert ráð fyrir hækkun útsvars né fasteignaskatta en haldið verður uppi atvinnustigi eins og kostur er í höfuðborginni," segir í tilkynningunni.

„Hanna Birna segir frumvarpið bera vott um ábyrga fjármálastjórn og einkennast af þeim nýju vinnubrögðum sem Reykjavíkurborg hefur innleitt við fjármálastjórnina. Lögð hefur verið áhersla á að forgangsraða í þágu þess sem mestu skiptir, barna og velferðar, og leita lausna með hagræðingu og sparnað að leiðarljósi í stað skatta- og gjaldahækkana," segir ennfremur.

Hallalaus A-hluti

Þá segir að gret sé ráð fyrir hallalausum rekstri borgarsjóðs (A-hluta) allt tímabilið. „Handbært fé frá rekstri stendur vel undir afborgunum á tímabilinu. Handbært fé í lok tímabilsins verður 14 milljarðar og mun aukast um 1,4 milljarða á tímabilinu. Lögð er áhersla á að Reykjavíkurborg viðhaldi sterkri eiginfjárstöðu og hafi mikið handbært fé til að standa vörð um lánshæfi borgarsjóðs og tryggja greiðsluhæfi hans vegna skuldbindinga samstæðunnar."

Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta er áætluð neikvæð um tæpan 1,5 milljarð króna árið 2011, 1,2 milljarða árið 2012 og rúman 1 milljarð árið 2013. „Hér má benda á að Orkuveita Reykjavíkur verður samkvæmt áætlun með jákvæða niðurstöðu allt tímabilið en hún er burðarásinn í B-hluta samstæðunnar. Áætlað er að eignir minnki um 1,4 milljarða á tímabilinu sem skýrist einkum af mismun á nýfjárfestingum og afskriftum. Áætlað er að skuldir lækki um 200 milljónir og eigið fé lækki um 1,2 milljarða. Áætlað er að handbært fé í lok tímabils verði 16,1 milljarðar."

Frumvarpið er hægt að nálgast á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is. Síðari umræða og afgreiðsla þriggja ára áætlunar fer síðan fram í borgarstjórn 16. mars.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×