Lífið

Jennifer Lowe Hewitt fílar ekki að vera einhleyp

Leikkonan Jennifer Lowe Hewitt þykir leiðinlegt að vera einhleyp á nýjan leik. Mánuður er síðan að hún og gamanleikarinn Jamie Kennedy hættu saman en þau voru trúlofuð. Frægt varð þegar Jamie kraup á kné á sviði í miðju uppistandi síðasta sumar og bað Jennifer um að giftast sér.

„Ég er meira fyrir að vera í sambandi. Sumir eru mjög ánægðir einhleypir en ég er ekki þannig," segir Jennifer í samtali við People magazine.

Jamie og Jennifer kynntust við tökur á þættinum Ghost Whisperer árið 2007. Jennifer segir að það hafi verið sameiginleg ákvörðun hennar og Jamie að slíta trúlofuninni. Þau séu góðir vinir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.