Sjö vilja hanna nýjan Landspítala 16. febrúar 2010 02:45 sjö umsóknir bárust Katrín Arnþórsdóttir, verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum, opnaði umsóknirnar í viðurvist umsækjenda í gær.fréttablaðið/gva
Alls bárust sjö umsóknir í forval vegna hönnunarsamkeppni nýs Landspítala og eru stærstu verkfræðistofur landsins meðal þátttakenda. Ábyrgðaraðilar hönnunarteymanna sjö, sem skiluðu inn umsóknum í forvalið, eru allir íslenskir: Mannvit, TBL Arkitektar, VSÓ Ráðgjöf, Efla, Verkís, Almenna verkfræðistofan og Guðjón Bjarnason. Hönnunarsamkeppnin tekur til áfangaskipts skipulags lóðar Landspítala við Hringbraut og útfærslu á 66 þúsund fermetra nýbyggingu þar. Áætlað er að framkvæmdir við nýja spítalann geti hafist á síðari hluta árs 2011 og standi fram á árið 2016. Áætlaður kostnaður við nýbygginguna er um 33 milljarðar króna á verðlagi í mars 2009 og skiptist hún í þrjá meginhluta: bráðakjarna með bráðamóttöku, myndgreiningu, gjörgæslu, skurðstofum og rannsóknarstofum; legudeildir með 180 rúmum sem öll eru í einbýli og sjúklingahótel með 80 herbergjum. Engar athugasemdir voru gerðar við framkvæmd forvalsins þegar niðurstöðurnar voru kynntar í gær. Forvalsnefnd skilar niðurstöðum sínum eftir viku, mánudaginn 22. febrúar 2010. Valin verða allt að fimm teymi til þátttöku í hönnunarsamkeppninni þar sem skilafrestur er í byrjun júní 2010 og úrslit eiga að liggja fyrir mánuði síðar. - shá
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Sjá meira