Capello: Rooney verður klár fyrir HM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. maí 2010 19:15 Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands. Nordic Photos / AFP
Fabio Capello á von á því að Wayne Rooney verði búinn að jafna sig af meiðslum sínum þegar að HM í knattspyrnu hefst í sumar. Rooney meiddist á nára þegar að lið hans, Manchester United, vann 4-0 sigur á Stoke í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Hann hefur mátt glíma við ýmis smávægileg meiðsli undanfarnar vikur, til dæmis á ökkla eftir leik gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu. Capello mun tilkynna á morgun hvaða 30 leikmenn hann velur í æfingahóp enska landsliðsins fyrir HM en hann getur aðeins tekið 23 leikmenn með sér á mótið sjálft. „Það eru engin stór vandamál," sagði Capello við enska fjölmiðla. „Hann [Rooney] verður klár eftir um tvær vikur og mun æfa með okkur í Austurríki," bætti hann við en þar verða æfingabúðir landsliðsins áður en það heldur til Suður-Afríku. Það er þó efast um að Gareth Barry geti verið með Englandi á HM þar sem hann verður frá næstu fjórar vikurnar vegna ökklameiðsla. Þá vildi Capello ekki tjá sig um orðróm þess efnis að Jamie Carregher muni gefa kost á sér í landsliðið á ný.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sjá meira