Segja Eið Smára hafa greitt fyrir þagmælsku frönsku fyrirsætunnar 7. febrúar 2010 10:18
Slúðurblaðið News Of the World greinir frá því í dag að Eiður Smári Guðjohnsen hafi greitt frönsku undirfatafyrirsætunni Vanessu Perroncell tíu þúsund pund þegar meintu ástarsambandi þeirra á að hafa lokið árið 2003. Greiðsluna á Eiður Smári að hafa innt af hendi til þess að tryggja að hún héldi trúnaði við hann varðandi meint ástarsamband þeirra samkvæmt News of the World. Það eru hinsvegar smámunir miðað við það sem John Terry, liðsmaður Chelsea, á að hafa greitt henni. Samkvæmt News of the World á hann að hafa borgað henni alls 750 þúsund pund fyrir þagmælskuna. Breska pressan hefur vakið athygli á því að Vanessa hefur ekki tjáð sig um meint ástarsambönd hennar við 6 núverandi og fyrrverandi liðsmenn Chelsea liðsins í breskum fjölmiðlum. Aftur á móti hefur upplýsingafulltrúi hennar, Max Clifford, séð um öll samskipti hennar við pressuna. Það hefur styrkt trú breskra blaðamanna og álitsgjafa um að Vanessu hafi verið borgað fúlgur fjár. Þá má geta þess að upplýsingafulltrúi Terrys er einmitt fyrrverandi ritstjóri News of the World og þykir ansi harðsvíraður í sínu fagi. Bæði Eiður Smári og Vanessa hafa neitað því að hafa átt í ástarsambandi. Hægt er að lesa umfjöllun blaðsins hér.
Tengdar fréttir Capello tekur ákvörðun um John Terry Enska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að það sé í höndum landsliðsþjálfarans, Fabio Capello, hvað verði um John Terry. 1. febrúar 2010 23:00 Eiður Smári í klóm breskra fjölmiðla Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Tottenham, er í kastljósi bresku pressunnar um þessar mundir eftir að breska blaðið The Sun hélt því fram að hann hefði átt í ástarsambandi við undirfatafyrirsætuna Vanessu Perroncel. 5. febrúar 2010 05:00 Landsliðsfyrirliðinn barnaði kærustu samherja síns John Terry, fyrirliði enska landsliðsins og Chelsea, gerði Vanessu Perroncel kærustu Wayne Bridge, liðsfélaga síns í Chelsea og landsliðinu, ólétta. Greint er frá málinu á vef News of the World í dag en Terry reyndi að fá lögbann á birtingu fréttar um málið í breskum fjölmiðlum. Á þá beiðni féllust þarlendir dómstólar ekki. Talið er að málið eigi eftir að draga dilk á eftir sér fyrir landsliðsfyrirliðann. 31. janúar 2010 13:03 Segir Eið Smára víst hafa átt í ástarsambandi við Vanessu Leigusali Vanessu Perconell, sem er sökuð um að hafa sængað hjá rúmlega hálfu fótboltaliði Chelsea, segir í viðtali við The Sun í dag að hún hefði margsinnis séð Eið Smára heima hjá Vanessu árið 2003. Bæði Eiður Smári og Vanessa hafa þvertekið fyrir að hafa átt í ástarsambandi. 4. febrúar 2010 09:21 Eiður Smári neitar ásökunum um framhjáhald Eiður Smári Guðjohnsen neitar að hafa átt í ástarsambandi við Vanessu Perroncel árið 2003 en enska dagblaðið The Sun fjallar ítarlega um meint framhjáhald hans í dag. 3. febrúar 2010 11:55 Ætlar ekki að selja sögu sína um ævintýrin hjá Chelsea Vanessa Perroncel undirfatafyrirsætan sem sögð er hafa sofið hjá helmingi knattspyrnuliðsins Chelsea segir að hún hafi alls ekki í hyggju að selja sögu sína. 5. febrúar 2010 16:54 John Terry: Reynir að þagga niður í fleiri hjákonum Hin franska Vanessa Peroncell er ekki sú eina sem knattspyrnustjarnan John Terry ætlar að borga fyrir að þegja um ástarsamband sitt við hann. Eftir því sem fram kemur í breska sunnudagsblaðinu News of the World þá eru stúlkurnar í það minnsta fjórar í viðbót. 7. febrúar 2010 06:00 Vanessa neitar að hafa átt í ástarsambandi við Eið Smára Fótboltafrúin Vanessa Perroncell hefur neitað ásökunum um að hafa sofið hjá Eiði Smára Guðjohnsen í blaðinu The London Evening Standard en það var upplýsingafulltrúinn hennar, Max Clifford sem talaði við blaðið. 3. febrúar 2010 14:29 Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Sjá meira
Capello tekur ákvörðun um John Terry Enska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að það sé í höndum landsliðsþjálfarans, Fabio Capello, hvað verði um John Terry. 1. febrúar 2010 23:00
Eiður Smári í klóm breskra fjölmiðla Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Tottenham, er í kastljósi bresku pressunnar um þessar mundir eftir að breska blaðið The Sun hélt því fram að hann hefði átt í ástarsambandi við undirfatafyrirsætuna Vanessu Perroncel. 5. febrúar 2010 05:00
Landsliðsfyrirliðinn barnaði kærustu samherja síns John Terry, fyrirliði enska landsliðsins og Chelsea, gerði Vanessu Perroncel kærustu Wayne Bridge, liðsfélaga síns í Chelsea og landsliðinu, ólétta. Greint er frá málinu á vef News of the World í dag en Terry reyndi að fá lögbann á birtingu fréttar um málið í breskum fjölmiðlum. Á þá beiðni féllust þarlendir dómstólar ekki. Talið er að málið eigi eftir að draga dilk á eftir sér fyrir landsliðsfyrirliðann. 31. janúar 2010 13:03
Segir Eið Smára víst hafa átt í ástarsambandi við Vanessu Leigusali Vanessu Perconell, sem er sökuð um að hafa sængað hjá rúmlega hálfu fótboltaliði Chelsea, segir í viðtali við The Sun í dag að hún hefði margsinnis séð Eið Smára heima hjá Vanessu árið 2003. Bæði Eiður Smári og Vanessa hafa þvertekið fyrir að hafa átt í ástarsambandi. 4. febrúar 2010 09:21
Eiður Smári neitar ásökunum um framhjáhald Eiður Smári Guðjohnsen neitar að hafa átt í ástarsambandi við Vanessu Perroncel árið 2003 en enska dagblaðið The Sun fjallar ítarlega um meint framhjáhald hans í dag. 3. febrúar 2010 11:55
Ætlar ekki að selja sögu sína um ævintýrin hjá Chelsea Vanessa Perroncel undirfatafyrirsætan sem sögð er hafa sofið hjá helmingi knattspyrnuliðsins Chelsea segir að hún hafi alls ekki í hyggju að selja sögu sína. 5. febrúar 2010 16:54
John Terry: Reynir að þagga niður í fleiri hjákonum Hin franska Vanessa Peroncell er ekki sú eina sem knattspyrnustjarnan John Terry ætlar að borga fyrir að þegja um ástarsamband sitt við hann. Eftir því sem fram kemur í breska sunnudagsblaðinu News of the World þá eru stúlkurnar í það minnsta fjórar í viðbót. 7. febrúar 2010 06:00
Vanessa neitar að hafa átt í ástarsambandi við Eið Smára Fótboltafrúin Vanessa Perroncell hefur neitað ásökunum um að hafa sofið hjá Eiði Smára Guðjohnsen í blaðinu The London Evening Standard en það var upplýsingafulltrúinn hennar, Max Clifford sem talaði við blaðið. 3. febrúar 2010 14:29