Innlent

Samtök ferðaþjónustunnar hafa áhyggjur af verkfalli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Erna Hauksdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Mynd/ Auðunn.
Erna Hauksdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Mynd/ Auðunn.
Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir miklum áhyggjum vegna boðaðs verkfalls flugvirkja 22. - 28. febrúar næstkomandi. Í yfirlýsingu sem Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, sendi fjölmiðlum er bent á að verkfallið muni stöðva flug til landsins. Ef af verði muni mikil viðskipti fara forgörðum með tilheyrandi tapi fyrir fyrirtæki og þjóðarbú.

Samtök ferðaþjónustunnar segja að verkföll sem stöðvi flug til landsins séu slæm fyrir orðspor íslenskrar ferðaþjónustu og fæli ferðamenn frá. Það þurfi oft ekki annað en orðróm um verkfall til að ferðamenn hætti við enda sé flug eina ferðaleiðin til og frá Íslandi.

Samtökin skora á samningsaðila að ná niðurstöðu áður en til verkfalls kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×