Innlent

Rök gegn því að lækka stýrivexti

Nefndarmenn peningastefnunefndar Seðlabankans voru sammála um að veigamikil rök hnigju gegn lækkun stýrivaxta meðan gengi krónunnar var jafnlágt og raun bar vitni. Þetta kemur fram í fundargerð Seðlabankans frá því um miðjan ágúst.

Þótt þess sæjust engin skýr merki að fyrri lækkanir stýrivaxta hefðu haft veruleg áhrif á það að farið hefði verið í kringum gjaldeyrishöftin, fé safnaðist fyrir á gjaldeyrisreikningum eða á veikingu krónunnar almennt, væri samt sem áður ekki hægt að útiloka slík áhrif.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×