Innlent

Stakk táning í Bankastræti

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, en honum er gefið að sök að hafa í nóvember í fyrra stungið táning með hnífi í síðuna.

Sá stungni hlaut þriggja sentimetra langan og tveggja sentimetra djúpan skurð. Maðurinn neitar sök og ber við neyðarvörn.

Þá er maðurinn jafnframt ákærður fyrir að hafa haft tíu e-töflur í fórum sínum í klefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×