Leiga Félagsbústaða orðin sambærileg leigumarkaði 20. janúar 2009 06:30
Meðalleiguverð hjá Félagsbústöðum og Leigulistanum á íbúðum í Reykjavík er orðið nokkuð sambærilegt. Minni íbúðir eru aðeins ódýrari hjá Félagsbústöðum, en stærstu íbúðirnar eru dýrari. „Það gefur auga leið að ef markaðsaðstæður breytast með þeim hætti að Félagsbústaðir eru komnir á skjön við það sem þar er, þá eru full efni til að endurskoða forsendurnar fyrir leiguverði, að minnsta kosti á stærstu íbúðunum," segir Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna. Rúmlega helmingur allra íbúða Félagsbústaða er eins til tveggja herbergja en einungis þrjú prósent eru fimm herbergi eða stærri. Leiguverð hjá Félagsbústöðum er vísitölubundið og hækkar með aukinni verðbólgu. Verulegur þrýstingur er hins vegar á lækkun leiguverðs á almennum markaði og hefur leigan lækkað um 15-20 prósent að undanförnu, samkvæmt Guðlaugi Þorsteinssyni hjá Leigulistanum. „Við höfum verið að biðja um þessar upplýsingar og reyna að gera okkur grein fyrir í hvað stefnir ef verðbólga verður hér áfram mjög há," segir Jórunn Frímannsdóttir, formaður Velferðarsviðs Reykjavíkur. Það sé áhyggjuefni ef leigan hækki umfram greiðslugetu leigjenda, en aðstoð vegna slíks verði alltaf í formi persónulegs stuðnings við þann sem er í miklum vanda. Tæplega 890 eru á biðlista hjá Félagsbústöðum og hefur fækkað um sautján frá áramótum. „Ef almenni markaðurinn fer niður er það vel," segir Sigurður Friðriksson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða. Hann bendir á að fyrir suma skipti öryggi búsetu hjá Félagsbústöðum miklu máli, en það sé ekki tryggt á almenna markaðnum. Frá árinu 2001, þegar húsnæðisverð hækkaði, hafi gegnumstreymið hjá Félagsbústöðum minnkað og biðlistar lengst. Hann á von á að þessi þróun breytist nú. - ghs, ss
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira