Lífeyrissjóðir með svipað tap og aðrir 7. apríl 2009 06:30 ekki slæmt „Við getum ekki séð að þetta sé slæmt miðað við allt,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri LL.
Íslensku lífeyrissjóðirnir skiluðu neikvæðri ávöxtun upp á 21,5 prósent í fyrra, miðað við tölur frá Fjármálaeftirlitinu. Margir erlendir lífeyrissjóðir skiluðu verri ávöxtun en þeir íslensku gerðu og það þrátt fyrir efnahagshrunið hér á landi. Norski olíusjóðurinn skilaði til dæmis neikvæðri ávöxtun upp á 23,3 prósent og belgískir sjóðir skiluðu ávöxtun upp á mínus 25 prósent árið 2008. Írskir lífeyrissjóðir skiluðu neikvæðri ávöxtun upp á 23 prósent, meðalávöxtunin hjá OECD-sjóðunum var neikvæð um 19 prósent, stærsti lífeyrissjóðurinn í Hollandi, ABP, skilaði neikvæðri ávöxtun upp á 20,2 prósent og AP3, sem er opinber lífeyrissjóður í Svíþjóð, skilaði 19,8 prósentum í neikvæða ávöxtun svo að dæmi séu nefnd. Inni í ávöxtun íslensku lífeyrissjóðanna vantar tölur frá nokkrum lífeyrissjóðum. Stærstur þeirra er sennilega Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, LSR. Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, LL, segir að þetta breyti ekki miklu varðandi niðurstöðutöluna. Ekki skipti öllu máli hvort ávöxtunin verði -21,5 eða -22,5 prósent því að hún sé á þessu bili. „Við getum ekki séð að þetta sé slæmt miðað við allt og allt," segir Hrafn, „ekki síst vegna þess að innlendur hlutabréfamarkaður bara hvarf. Hann bara hrundi og þá er þetta alls ekki slæmt." Hrafn segir að lífeyrissjóðirnir hafi komið vel út úr efnahagslægðinni 2000-2002. „Þá stóðum við okkur mjög vel. Við vorum með neikvæða ávöxtun upp á 1,9 prósent 2001, 3,0 prósent 2002 og 0,7 í mínus árið 2000. Þetta voru lágar tölur. Þær voru mun hærri erlendis." Hrafn bendir á að fyrst 1991 hafi byrjað að koma tölur frá Bankaeftirlitinu um ávöxtun íslensku lífeyrissjóðanna. Ef horft sé á tímabilið frá 1991 til og með 2008 þá komi í ljós að raunávöxtunin sé jákvæð yfir 3,5 prósentum sem sé viðmiðunarmarkmið, „þrátt fyrir svona geysilega slæmt ár eins og var í fyrra". Hrafn telur útilokað að ávöxtun lífeyrissjóðanna verði jafn slæm og í fyrra. Það fari þó eftir þróuninni erlendis. „Hún skiptir mestu máli í dag og líka hvernig gengi íslensku krónunnar verður þegar upp er staðið. Ég held að botninum sé náð. Það dettur engum í hug að við fáum svona ár aftur." ghs@frettabladid.is
Mest lesið Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Albanese segir Netanyahu í afneitun Erlent Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu Erlent Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Innlent Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Innlent Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Erlent Fleiri fréttir Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Sjá meira