Mikil verðmæti geta glatast á töfum 7. apríl 2009 03:00 SPRON Formaður skilanefndar SPRON óttast flótta viðskiptavina takist ekki að opna fljótlega útibú sem seld voru MP.
Hlynur Jónsson, formaður skilanefndar SPRON, segir mikil verðmæti í uppnámi, gangi salan á SPRON til MP Banka ekki eftir. Salan á útibúum SPRON og netabanka SPRON til MP Banka fékk grænt ljós frá Samkeppniseftirlitinu en hefur ekki fengist staðfest af Fjármálaeftirlitinu. Hlynur segir að meta megi söluna á um 800 milljónir króna. Þar af er stór upphæð vegna launa 45 starfsmanna sem MP ætlar að yfirtaka en skilanefndin þarf ella að greiða þriggja til tólf mánaða uppsagnarfrest eftir atvikum. Þrátt fyrir tafir á afgreiðslu málsins frá Fjármálaeftirlitinu segir Hlynur það ekki hafa tekið óeðlilega langan tíma miðað við afgreiðslu annarra mála þar. Nú haldi Fjármálaeftirlitið um alla þræði. „Ef sölunni til MP verði hafnað hafi verðmæti SPRON þegar rýrnað verulega. Þá er vafamál hvort nokkuð fengist fyrir þetta lengur," segir Hlynur, sem kveður ástæðu þess liggja í augum uppi. „Eftir því sem útibúin er lokuð lengur hljóta þau að tapa sínum viðskiptavinum. Ef þú ætlar að opna aftur eftir tvo mánuði hlýtur þú að þurfa að finna nýja kúnna." Eins og áður segir felst hluti kaupverðsins á SPRON í yfirtöku 45 starfsmanna. Hlynur segir mjög marga þeirra hafa sex mánaða uppsagnarfrest. Illt sé í efni ef viðskiptin fari út um þúfur. „Þá þurfum við að borga þessu fólki laun án þess að hafa nokkur not fyrir það," bendir hann á. - gar
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira