Eignir sökudólganna upp í skuldir á undan eignum almennings 7. apríl 2009 13:17 Ólafur Ísleifsson.
Hagfræðingarnir Gunnar Tómasson og Ólafur Ísleifsson mættu í Bítið í morgun og ræddu Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og stöðu ríkisins og heimilanna. Þeir félagar eru báðir fyrrverandi starfsmenn AGS og voru þeir nokkuð sammála um það að þeir, Michael Hudson og John Perkins, sem verið hafa hér á landi undanfarna daga og gagnrýnt AGS harðlega, hafi tekið of djúpt í árinni. Ólafur sagðist alls ekki getað tekið undir þær fullyrðingar að AGS væri að vinna gegn hagsmunum Íslendinga. Gunnar tók svipaðan pól í hæðina og tók hann dæmi af málefnum Indónesíu sem Perkins hefur tekið sem dæmi um slæm vinnubrögð og merki um að AGS gangi erinda auðhringa. „Á tuttugu og fimm ára starfsferli hjá sjóðnum vissi ég aldrei af slíku," sagði Gunnar. „Ég var sjálfur aðili að samningum AGS og Indónesíu um efnahagsáætlanir af því tagi sem þeir hafa núna hér á Íslandi," sagði Gunnar. „Það er ekki til stafur af því sem hann sagði sem má heimfæra upp á Indónesíu, ekki stafur." Aðspurðir um framtíð Íslands og þá sérstaklega komandi mánuði sagði Ólafur framtíðina bjarta en öllu máli skipti hvernig haldið verði á málunum. Ólafur sagði að það þurfi að ganga fram af fullri hörku til að hljóta réttláta og sanngjarna málsmeðferð í samningum um skuldir ríksins og eðlilegt sé að þeir aðilar sem bera ábyrgð á þeim skuldir verði látnir borga. Ganga eigi fast eftir því að eignir þeirra verði sóttar og þær notaðar til að mæta þessum kröfum áður en gengið sé á almenning. Að mati Gunnars eru Íslendingar ekki komnir nema hálfa leið niður í vandann. Hann sagðist ekki hafa séð neinar raunhæfar aðgerðir af hendi ríkisstjórnar til að bæta eða vernda stöðu heimilanna og kallaði þær hálfkák. Hann sagði sárt til þess að hugsa að hér hafi stjórnvöld ekki náð heildarsýn á hver vandinn er eða hvernig eigi að taka á honum. Skynsamlegast hefði verið að bíða með kosningar fram á haustið og nota tímann til að móta raunhæfa stefnu og bendir til dæmis á þá fásinnu að ekki hafi verið hreyft við verðtryggingunni. Hér má nálgast spjall þeirra félaga frá því í morgun.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Fleiri fréttir Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum Sjá meira