Fékk ekki færi á andmælum 7. apríl 2009 06:15
Dómsmálaráðuneytið á að taka aftur fyrir mál karlmanns frá Venesúela sem Útlendingastofnun vísaði úr landi eftir að hann hafði lokið afplánum dóms fyrir líkamsárás. Þetta segir umboðsmaður Alþingis. Maðurinn á íslenska unnustu og búa þau nú saman í Venesúela. Hann kom til Íslands í maí 2006. Í byrjun ágúst sama ár lenti hann í áflogum á skemmtistaðnum í Traffic í Keflavík og skar þar illa með flösku Bandaríkjamann úr varnarliðinu. Venesúelamaðurinn hlaut átján mánaða fangelsisdóm en þar af voru fimmtán mánuðir skilorðsbundnir. Á meðan hann afplánaði á Litla-Hrauni barst honum bréf á ensku frá Útlendingastofnun. Þar kom fram að honum væri vísað úr landi og mætti ekki koma aftur næstu sjö árin. Ef hann væri með athugasemdir hefði hann þrjá daga til að skila greinargerð. Venesúelamaðurinn kærði málsmeðferðina til dómsmálaráðuneytisins, sem hins vegar staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar. Þá vísaði maðurinn málinu til umboðsmanns Alþingis, sem nú hefur kveðið upp úr um að andmælaréttur hafi verið brotinn á manninum með því að hann hafi ekki fengið túlk og allt of stuttan tíma til andsvara. Ráðuneytið fær síðan ákúrur fyrir að hafa ekki sótt nauðsynleg svör frá Útlendingastofnun. - gar
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Gleðileg jól, kæru lesendur Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira