Fagfélagið gefur Krabbameinsfélaginu milljón 7. apríl 2009 12:43 Ragnheiður Alfreðsdóttir, forstöðumaður Ráðgjafarmiðstöðvar KÍ, að taka við styrknum úr hendi Finnbjörns Hermannssonar, formanns Fagfélagsins.
Í gær afhenti Fagfélagið Ragnheiði Alfreðsdóttur, forstöðumanni Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, eina milljón króna til styrktar átakinu Karlmenn og krabbamein. Fagfélagið er stéttarfélag sem varð til í desember þegar Trésmiðafélag Reykjavíkur og Félag byggingamanna Eyjafirði runnu saman. „Karlmenn eru í miklum meirihluta í Fagfélaginu og krabbamein er sjúkdómur sem herjar á karla. Þrátt fyrir það er krabbamein hálfgerður feimnissjúkdómur, sem menn tala almennt ekki um," segir Finnbjörn Hermannsson, formaður Fagfélagsins við tilefnið. Ákvörðunin um styrkinn var tekin á fyrsta aðalfundi hins nýstofnaða stéttarfélags. „Þegar átakið Karlmenn og krabbamein fór af stað vildum við leggja okkar af mörkum til að rjúfa þögnina og hvetja karlmenn til að miðla af reynslu sinni. Menn flíka oft ekki líðan sinni, en með því að ræða þessa hluti opinskátt er bæði hægt að bera fyrr kennsl á fyrstu einkenni og læra hvernig bregðast skuli við," bætir Finnbjörn við. Í tilkynningu frá Krabbameinsfélagi Íslands segir að Árveknisátakið Karlmenn og krabbamein standi hvað hæst í marsmánuði en það var nú haldið í annað sinn. Það er Krabbameinsfélag Íslands sem á veg og vanda af átakinu sem ætlað er að vekja karlmenn til vitundar um krabbamein hjá körlum, einkenni þess en einnig forvarnir og heilbrigðan lífsstíl. „Við erum afar þakklát fyrir að fá þennan styrk og hann mun nýtast málefninu mjög vel. Allur ágóði af átakinu rennur til frekari forvarna á þessu sviði og til Ráðgjafarþjónustu okkar, sem veitir ókeypis stuðning og sérfræðiráðgjöf um allt sem tengist krabbameini," segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins. „Einn af hverjum þremur körlum greinist með krabbamein einhvern tíma á lífstíð sinni, og það er ánægjulegt að sjá félag eins og Fagfélagið, sem er aðallega stéttarfélag karla, sýna slíka samstöðu og gott fordæmi með því að leggja sitt af mörkum við að opna umræðuna meðal karla."
Mest lesið Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Sæti Artúrs logar Erlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Fleiri fréttir Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Sjá meira