Íslenski boltinn

Haukur Páll lánaður til Noregs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Haukur Páll í leik gegn Fylki.
Haukur Páll í leik gegn Fylki. Mynd/Valli

Einn sterkasti leikmaður Þróttar, Haukur Páll Sigurðsson, leikur ekki meira með liðinu í sumar því hann er á leiðinni til Noregs.

Þróttur hefur ákveðið að lána leikmanninn til norska 1. deildarliðsins Alta IF. Liðið er í baráttu um að komast í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.

Haukur er uppalinn Þróttari sem hefur aldrei leikið fyrir annað félag.

Hann fer strax utan og hefur því lokið keppni með Þrótturum í sumar sem eru svo gott sem fallnir í 1. deild.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×