Æðstapresti Jedi reglunnar hent út úr stórmarkaði 22. september 2009 13:26 Æðsti presturinn Daniel Jones (til hægri) mundar geislasverðið.
Stofnandi Jedi kirkjunnar sem styðst við trúar- og lífsskoðanir Jedi riddaranna í Star Wars myndunum íhugar nú að fara í mál við Tesco verslanakeðjuna í Bretlandi. Æðstipresturinn Daniel Jones, 23 ára gamall maður frá Wales, sem einnig gengur undir nafninu Morda Hehol, segir farir sínar ekki sléttar af viðskiptum sínum við öryggisverði Tesco. Þeir hentu honum út úr búðinni vegna þess að hann neitaði að fara úr skikkjunni sem allir sannir Jedi meistarar ganga ævinlega í. Að sögn Jones er það í samræmi við Jedi trúnna að ganga ævinlega í skikkjunni á opinberum stöðum og því hafi verið brotið gróflega gegn rétti hans og trú. Meðlimir Jedi kirkjunnar eru raunar fjölmargir um allan heim og staðhæfir Jones að hálf milljón manna séu í söfnuði hans. Talsmaður Tesco tók hinsvegar til varna og staðhæfir að allir Jedi riddarar séu velkomnir í Tesco hvenær sem er, svo lengi sem þeir taki af sér skikkjuna. „Obi-Wan Kenobi, Yoda og Logi Geimgengill sáust allir án skikkju sinnar á einhverjum tímapunkti í Star Wars myndunum án þess að það orsakaði það að þeir gengu á band hins illa," sagði talsmaðurinn, greinilega vel að sér í Star Wars fræðunum. „Hér hjá Tesco munum við raun ar aðeins eftir einum í Star Wars sem aldrei tók af sér skikkju sína og það var illi keisarinn Palpatine."
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira