Að gera sem minnst í vinnunni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. nóvember 2009 08:45
Bandarískur rithöfundur segir fólk enn þá geta komist upp með að gera sem minnst í vinnunni, hvað sem kreppuástandi líður. Stanley Bing er sérkennilegur rithöfundur. Hann fæst einkum við að skoða vinnustaði og hefur gefið út fjölda sjálfshjálparbóka fyrir vinnandi fólk, flestar um það hvernig heppilegast sé að gera sem minnst í vinnunni og komast upp með það. Nýjasta bók hans, Hvernig á að lifa af á nýja vinnustaðnum, sem kemur út eftir viku, er endurútgáfa fyrri bókar hans, Að láta af störfum í vinnunni, eða How to Retire While You're Still Working, og er nýja bókin sérstaklega sniðin að kreppuástandi nútímans. Bækur Bing snúast þó ekki að öllu leyti um hvernig stunda skuli letilíf við skrifborðið, undir niðri eru þær í reynd margslungnir leiðbeiningabæklingar um tímaskipulagningu og mótun draumastarfsferilsins. Hann kennir fólki í raun að nota aðferðir yfirmannsins til að komast á toppinn. Og þar talar hann af reynslu. Stanley Bing heitir nefnilega alls ekki Stanley Bing heldur er hann í raun Gil Schwartz, aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs CBS-fjölmiðlarisans. Stanley Bing er hins vegar höfundarnafn sem hann tók upp þegar hann gerðist dálkahöfundur fyrir Esquire-tímaritið. Þungamiðjan í fræðum Schwartz, eða Bing, er að koma sér upp aðstoðarmanni og takist það ekki nota þá aðstoðarmenn annarra sem sína. Þetta sé það sem að lokum skili flestum á toppinn. Dæmi hver sem vill um það.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira