Verkmannaflokkurinn og Hægriflokkurinn bættu mest við sig Atli Steinn Guðmundsson skrifar 15. september 2009 08:28 Jens Stoltenberg forsætisráðherra má vera sáttur við sinn flokk, Verkamannaflokkinn.
Þriggja flokka samsteypustjórn Noregs hélt velli eftir að kosningum til Stórþingsins lauk í gær en ekki mátti þó miklu muna. Verkamannaflokkurinn, Sósíalíski vinstriflokkurinn og Miðflokkurinn, sem saman mynda ríkisstjórn Noregs, stóðu uppi með 86 þingsæti þegar öll kurl voru komin til grafar í gærkvöldi en stjórnarandstöðuflokkarnir fengu 83 sæti. Það voru Verkamannaflokkurinn og Hægriflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu, sem óumdeilanlega voru sigurvegarar kosninganna með 64 þingsæti og 31. Hægriflokkurinn bætir þannig við sig einum átta þingsætum en Verkamannaflokkurinn þremur. Góðu gengi sínu má Hægriflokkurinn að stórum hluta þakka leiðtoga sínum, Ernu Solberg, sem gekk hart fram í kosningabaráttunni og vann hug og hjörtu kjósenda á lokasprettinum. Vinstriflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu, kom hins vegar allra flokka verst út úr kosningunum og tapaði átta af tíu þingsætum sínum enda tilkynnti formaðurinn Lars Sponheim um afsögn sína þegar að lokinni talningu atkvæða.
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira