Umfjöllun: Langþráður sigur Fjölnis Smári Jökull Jónsson skrifar 9. júlí 2009 18:15 Ragnar Heimir Gunnarsson í leik með Fjölni.
Fjölnismenn unnu gríðarlega mikilvægan sigur á Stjörnunni í Pepsi-deild karla í kvöld. Þeir lyftu sér þar með úr fallsæti en Stjarnan situr í 3.sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Fylkir. Stjörnumenn mættu með hálf vængbrotið lið til leiks í Grafarvoginum í kvöld. Þeirra hættulegustu sóknarmenn í sumar, þeir Arnar Már Björgvinsson og Steinþór Freyr Þorsteinsson, voru báðir fjarri góðu gamni vegna meiðsla og sömuleiðis varnartröllið Tryggvi Sveinn Bjarnason. Það virtist taka Stjörnumenn tíma til að jafna sig á fjarveru þessara lykilmanna. Leikur þeirra var ekki góður í fyrri hálfleik og Fjölnismenn voru sterkari aðilinn í hálfleiknum. Jónas Grani Garðarsson hefði átt að koma heimamönnum yfir þegar hann skallaði yfir markið af markteig en Andri Valur Ívarsson gerði hins vegar allt rétt þegar hann skoraði fyrsta mark leiksins á 36.mínútu. Magnús Björgvinsson átti þá skelfilega sendingu til baka á Bjarna Þórð í markinu, Andri Valur komst inn í sendinguna, lék framhjá Bjarna og skoraði auðveldlega. Stjörnumenn mættu síðan dýrvitlausir til leiks í síðari hálfleik. Þeir fengu eitt dauðafæri áður en Magnús bætti fyrir mistökin með góðu marki og jafnaði metin í 1-1. Eftir markið ógnuðu gestirnir marki Fjölnis í nokkur skipti en heimamenn unnu sig síðan smátt og smátt aftur inn í leikinn. Það var svo Húsvíkingurinn knái, Jónas Grani Garðarsson, sem kom heimamönnum yfir á nýjan leik með marki eftir að hafa sloppið í gegnum vörn Stjörnunnar. Garðbæingar voru vægast sagt ósáttir við markið og vildu meina að Jónas Grani hefði lagt fyrir sig boltann með hendinni en markið stóð og heimamenn komnir yfir. Eftir þetta lögðu Stjörnumenn allt kapp á að jafna en það voru hins vegar heimamenn sem bættu í og Gunnar Már Guðmundsson skoraði þeirra þriðja mark úr vítaspyrnu sem Þorvaldur Árnason dæmdi eftir að Bjarni markvörður felldi Jónas Grana. Halldór Orri Björnsson fékk svo rautt spjald á síðustu andartökum leiksins fyrir glórulausa tæklingu úti á miðjum velli. Nokkuð sanngjarn sigur Fjölnis staðreynd og þeir lyftu sér þar með úr fallsæti og fóru uppfyrir bæði ÍBV og Grindavík.Fjölnir - Stjarnan 3-11-0 Andri Valur Ívarsson (36.mín) 1-1 Magnús Björgvinsson (55.mín) 2-1 Jónas Grani Garðarsson (76.mín) 3-1 Gunnar Már Guðmundsson (víti) (83.mín)Áhorfendur: ÓuppgefiðDómari: Þorvaldur Árnason (7)Skot (á mark): 10 - 11 (4 - 6)Varin skot: Hrafn 5 - Bjarni 1Horn: 4 - 6Aukaspyrnur fengnar: 14 - 10Rangstöður: 7 - 0Fjölnir (5-2-3)Hrafn Davíðsson 7 - Maður leiksinsIllugi Þór Gunnarsson 6 Ásgeir Aron Ásgeirsson 5 Ólafur Páll Johnson 5 Gunnar Valur Gunnarsson 5 Vigfús Arnar Jósepsson 5 Magnús Ingi Einarsson 6 Gunnar Már Guðmundsson 6 Tómas Leifsson 6 (88 Aron Jóhansson -) Jónas Grani Garðarsson 6 (84 Ragnar Heimir Gunnarsson -) Andri Valur Ívarsson 7 (74 Kristinn Freyr Sigurðsson -)Stjarnan (4-5-1) Bjarni Þórður Halldórsson 4 Bjarki Páll Eysteinsson - (9 Baldvin Sturluson 5) Guðni Rúnar Helgason 5 Daníel Laxdal 4 Hafsteinn Rúnar Helgason 4 Jóhann Laxdal 5 Björn Pálsson 5 Halldór Orri Björnsson 6 Birgir Hrafn Birgisson 6 (77 Richard Hurlin -) Magnús Björgvinsson 6 (86 Heiðar Atli Emilsson -) Ellert Hreinsson 6
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Bjarni: Markið var kolólöglegt Bjarni Jóhannsson var ósáttur í leikslok eftir að hans menn lágu fyrir Fjölni í Grafarvogi. Bjarni vildi meina að annað mark Fjölnis hefði verið kolólöglegt og sagði það algjöran vendipunkt í leiknum. 9. júlí 2009 21:39 Jónas Grani: Hann fór í hendina á mér Jónas Grani Garðarsson skoraði annað mark Fjölnis þegar þeir unnu góðan 3-1 sigur á Stjörnunni í Grafarvogi í kvöld. 9. júlí 2009 21:52 Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ Sjá meira
Bjarni: Markið var kolólöglegt Bjarni Jóhannsson var ósáttur í leikslok eftir að hans menn lágu fyrir Fjölni í Grafarvogi. Bjarni vildi meina að annað mark Fjölnis hefði verið kolólöglegt og sagði það algjöran vendipunkt í leiknum. 9. júlí 2009 21:39
Jónas Grani: Hann fór í hendina á mér Jónas Grani Garðarsson skoraði annað mark Fjölnis þegar þeir unnu góðan 3-1 sigur á Stjörnunni í Grafarvogi í kvöld. 9. júlí 2009 21:52