Upp­gjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skaga­menn sóttu stig í Fossvoginn

Kolbeinn Kristinsson skrifar
Skagamenn áttu góða endurkomu í leiknum.
Skagamenn áttu góða endurkomu í leiknum. Guðmundur/Vísir

Víkingur og ÍA gerðu 2-2 jafntefli á Víkingsvelli í 25. umferð Bestu deildar karla. Heimamenn komust í 2-0 með mörkum Valdimars Þórs Ingimundarsonar og Arons Elís Þrándarsonar en Skagamenn unnu sig inn í leikinn. Markús Páll Ellertsson minnkaði muninn fyrir hlé og sjálfsmark Olivers Ekroth í upphafi síðari hálfleiks tryggði ÍA stig.

Fyrir leik mynduðu leikmenn ÍA heiðursvörð fyrir Íslandsmeistara Víkinga þegar heimamenn gengu inn á völlinn. Á sama tíma héldu stuðningsmenn Víkings uppi stórum borða í stúkunni til heiðurs Ingvari Jónssyni markverði.

Víkingar fengu síðan sannkallaða gjöf strax á sjöundu mínútu. Krefjandi sending kom til baka frá Guðmundi Þórarinssyni og Árni Marinó misreiknaði boltann illa. Boltinn skoppaði yfir hann við vítateigslínuna og Valdimar Þór Ingimundarson gekk á lagið og kom Víkingi yfir.

Tíu mínútum síðar var staðan orðin 2-0. Helgi Guðjónsson tók hornspyrnu frá hægri og skrúfaði boltann inn að marki. Skalli heimamanna var varinn meistaralega en Aron Elís Þrándarson var réttur maður á réttum stað og kom boltanum yfir línuna.

Skagamenn gáfust þó ekki upp. Á 38. mínútu komst Gísli Eyjólfsson upp að endamörkum hægra megin og lagði boltann út í vítateiginn þar sem Markús Páll Ellertsson kláraði í fyrstu snertingu. Einfalt og vel útfært mark sem kom ÍA aftur inn í leikinn fyrir hlé.

Skagamenn jöfnuðu snemma eftir hlé

ÍA hélt áfram þar sem frá var horfið eftir hlé og jafnaði metin á 53. mínútu.

Gísli Laxdal sendi fasta og hættulega aukaspyrnu frá hægri inn á vítateiginn. Vörn Víkings náði ekki að koma boltanum frá og Oliver Ekroth fékk boltann í sig af stuttu færi með þeim afleiðingum að hann fór í eigið mark.

Þar með var staðan orðin 2-2 eftir að Víkingur hafði leitt 2-0 snemma leiks.

Fleiri mörk litu ekki dagsins ljós og liðin skildu því jöfn í Fossvoginum í miklum baráttuleik. Víkingar byrjuðu leikinn af krafti en Skagamenn svöruðu vel og unnu sig aftur inn í leikinn með tveimur mörkum sitt hvoru megin við hálfleik.

Atvik leiksins

Það eru í raun þrjú atvik sem standa upp úr. Fyrstu tvö áttu sér stað áður en flautað var til leiks, annars vegar þegar Skagamenn mynduðu heiðursvörð fyrir Íslandsmeistara Víkinga er þeir gengu inn á völlinn og hins vegar þegar stuðningsmenn heimamanna héldu á sama tíma á lofti stórum borða í stúkunni til heiðurs Ingvari Jónssyni, markverði Víkinga. Falleg og virðingarverð stund í Fossvoginum.

Eftir að leikurinn var flautaður á verður fyrsta mark leiksins að teljast eitt af atvikum leiksins, í meira lagi klaufalegt mark sem ÍA fékk á sig eftir sjö mínútna leik.

Stjörnur og skúrkar

Viktor Örlygur var öflugur á miðsvæðinu lengst af í leiknum fyrir heimamenn og með hættulegar hornspyrnur. Valdimar skoraði gott mark líkt og Aron Elís en þeir voru sömuleiðis sterkir og vinnusamir að venju.

Hjá ÍA var mikil barátta, vinnsla og pressa nær allan leikinn. Leikmenn sem komu inn á veiktu svo sannarlega ekki liðið. Markús Páll skoraði fínt mark og kom sínu liði aftur inn í leikinn. Baldvin Þór í vörninni var öflugur sömuleiðis hjá gestunum; hávaxinn og röskur leikmaður með góðar spyrnur og átti flottan leik.

Við setjum skúrkinn á Árna Marinó fyrir að gefa einkar klaufalegt fyrsta mark en það skal tekið fram að sendingin frá Gumma Tóta til baka í aðdragandanum hjálpaði ekki.

Dómarinn

Sigurður Hjörtur og hans teymi áttu ágætis leik. Dómgæslan var yfirveguð, lítið var um vafaatriði í rauninni en það voru hins vegar alveg læti og barátta fyrir allan peninginn. Heilt yfir örugg og fagmannleg frammistaða. Einkunn: 8,0

Stemning og umgjörð

Þetta var skemmtilegt haustkvöld í Fossvoginum, smá gustur og kalt vissulega en fallegt úti og fínasta umgjörð á Víkingsvelli eins og alltaf. Áhorfendur létu ágætlega í sér heyra og stemningin var flott mestallan leikinn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira