„Orðið algjört vígi að koma hérna“ Árni Gísli Magnússon skrifar 10. október 2026 17:20 Girðir Hrafn hefur komið sterkur inn í lið Þórs. Guðmundur/Vísir Þór vann mikilvægan 1-0 sigur á heimavelli gegn ÍBV í fallbaráttuslag en með tapinu eru Eyjamenn endanlega fallnir. Þórsarar eru áfram í fallsæti, tveimur stigum frá öruggu sæti, þegar tvær umferðir eru eftir.
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson stóð vaktina í vörn Þórs og var ánægður með sigurinn. „Bara virkilega vel. Þetta var risasigur fyrir okkur, lífsnauðsynlegur fyrir okkur að vinna þennan leik sko, og bara eins og ég segi við eigum þrjá úrslitaleiki eftir, búnir að vinna fyrsta, nú eigum við tvo úrslitaleiki eftir og það er bara virkilega gott og eins og ég segi þessi heimavöllur hérna, við erum varla búnir að tapa á heimavelli, þetta er bara orðið algjört vígi að koma hérna og við erum bara virkilega ánægðir með það að láta heimavöllinn okkar tikka og fá þrjú stig hér.“ Þór náði forystu eftir hálftíma leik og voru ívið betra liðið en undir lokin sóttu Eyjamenn stíft í leit að jöfnunarmarki sem liðinu vantaði til að falla ekki og við það féll Þórsliðið neðar á völlinn. „Já það er rétt, við skorum þarna í fyrri hálfleik og mér fannst fyrri hálfleikurinn mjög góður, við vorum að pressa þá algjörlega í drasl þarna í fyrri hálfleik sko og við fengum hættulegri færi í þessum leik klárlega. Mér fannst þeir aldrei eiga hættulegri færi, það voru boltar sem komu beint inn í teig en við vorum bara að éta þá við varnarmennirnir gjörsamlega og miðjumennirnir líka.“ „Mér leið vel allavega í lokin á leiknum þannig að já mér leið vel og ég held að ölum í liðinu hafi liðið vel þannig við erum ánægðir.“ Þórsarar mættu Eyjamönnum af miklum ákafa strax í upphafi. „Já klárlega. Það var uppleggið að hlaupa á þá og nýta þessa orku. Við erum með gríðarlega orkumikið lið og erum með orkumikla leikmenn og við getum hlaupið á lið og getum það og ætlum að sýna það og við gerðum það í fyrri hálfeik, duttum aðeins í seinni, en samt við héldum okkar tempói og vorum góðir, bara mjög góðir, og það var uppleggið bara að hlaupa á þá og sýna styrkleika okkar og við gerðum það heldur betur.“ ÍBV er formlega fallið eftir úrslit dagsins þegar tvær umferðir eru eftir. Þór er þar fyrir ofan í hinu fallsætinu með 24 stig en KA með 26 stig og FH með 30 stig. Það er því ansi líklegt að annað hvort Þór eða KA muni kveðja Bestu deildina í ár. „Já heldur betur, þetta er alvöru Akureyrar barátta hérna ef ég má kvera en eins og ég segi við eigum bara tvo úrslitaleiki eftir og erum bara að fókusa á okkur og við ætlum bara að vinna næsta leik og allt púður núna og í kvöld og á morgun fer í endurheimt og svo næstu leikir og undirbúa sig og safna orku því við ætlum líka að hlaupa þann leik og gera okkar allra besta.“ Næsti leikur Þórs er heimaleikur gegn Stjörnunni og vonast Gyrðir eftir góðum stuðningi úr stúkunni. „Já klárlega en það var flott mæting í dag, ég er ánægður með stuðningsmennina okkar, þeir eru virkilega góðir, láta vel heyra í sér og ég bara hvet alla Akureyringa, Þórsara, til að mæta á næsta leik. Það er gríðarlega mikilvægur leikur, enn einn úrslitaleikur hér á heimavelli og eins og ég segi við höfum unnið marga hér á heimavelli og við þurfum allan stuðninginn og það er bara frábært Ég hvet alla til að mæta, bara geggjað“, sagði Gyrðir að lokum.
Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira