Hætta að senda börnum reikninga Valur Grettisson skrifar 4. febrúar 2009 16:53 Framkvæmdarstjóri Heilsustofnunnar Suðurlands segir að rukkun barna verði hætt. „
Þessari framkvæmd verður breytt þannig að það verður farið í handvirka leit að forráðamönnum barna yngri en átján ára og þeim sendir reikningarnir," segir Magnús Skúlason, framkvæmdarstjóri Heilbrigðistofnunnar Suðurlands. Vísir sagði frá því fyrr í dag að þriggja ára gamall drengur búsettur á Eyrabakka hefur fengið senda til sín fimm greiðsluseðla frá heilbrigðisstofnun Suðurlands og þar á meðal innheimtukröfu upp á þrjú hundruð krónur. Faðir barnsins er ósáttur við rukkunina, sem er á nafni og kennitölu barnsins. „Við höfum verið með þetta svona árum saman en þetta er í fyrsta sinn sem athugasemd hefur verið gerð við þetta fyrirkomulag," segir Magnús en samkvæmt lögræðislögum er ekki heimilt fyrir einstaklinga undir átján ára aldri að stofna til skulda. Magnús segir að sjúkraskráningakerfi sem þeir vinni með sé sjálfvirkt og þar komi alltaf nafn sjúklings upp og þeim svo sendur reikningur. Til þess að finna forráðamenn þurfi að leita sérstaklega að þeim og það verk sé nú hafið. „Þetta er nú ekki viljandi gert, kerfið er flókið og því fékk barnið reikningana senda á sína kennitölu," segir Magnús en þeir láta svo Landsbankann sjá um innheimtu reikninganna. Að mati Magnúsar þarf að fara í breytingar á kerfinu þannig að þetta endurtaki sig ekki. „Það er alveg skýrt að börn undir aldri mega ekki stofna til skulda," segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytanda, sem hafði samband við fréttastofu Vísis til þess að árétta að skuldsetning barna samræmist ekki lögum. Frekari upplýsingar um neytendavarnir barna má lesa hér.
Tengdar fréttir Þriggja ára barn í innheimtu Þriggja ára gamall drengur búsettur á Eyrabakka hefur fengið senda til sín fimm greiðsluseðla frá heilbrigðisstofnun Suðurlands og þar á meðal innheimtukröfu upp á þrjú hundruð krónur. 4. febrúar 2009 12:08 Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira
Þriggja ára barn í innheimtu Þriggja ára gamall drengur búsettur á Eyrabakka hefur fengið senda til sín fimm greiðsluseðla frá heilbrigðisstofnun Suðurlands og þar á meðal innheimtukröfu upp á þrjú hundruð krónur. 4. febrúar 2009 12:08