Innlent

Hætta að senda börnum reikninga

Valur Grettisson skrifar
Framkvæmdarstjóri Heilsustofnunnar Suðurlands segir að rukkun barna verði hætt.
Framkvæmdarstjóri Heilsustofnunnar Suðurlands segir að rukkun barna verði hætt.

„Þessari framkvæmd verður breytt þannig að það verður farið í handvirka leit að forráðamönnum barna yngri en átján ára og þeim sendir reikningarnir," segir Magnús Skúlason, framkvæmdarstjóri Heilbrigðistofnunnar Suðurlands.

Vísir sagði frá því fyrr í dag að þriggja ára gamall drengur búsettur á Eyrabakka hefur fengið senda til sín fimm greiðsluseðla frá heilbrigðisstofnun Suðurlands og þar á meðal innheimtukröfu upp á þrjú hundruð krónur. Faðir barnsins er ósáttur við rukkunina, sem er á nafni og kennitölu barnsins.

„Við höfum verið með þetta svona árum saman en þetta er í fyrsta sinn sem athugasemd hefur verið gerð við þetta fyrirkomulag," segir Magnús en samkvæmt lögræðislögum er ekki heimilt fyrir einstaklinga undir átján ára aldri að stofna til skulda.

Magnús segir að sjúkraskráningakerfi sem þeir vinni með sé sjálfvirkt og þar komi alltaf nafn sjúklings upp og þeim svo sendur reikningur. Til þess að finna forráðamenn þurfi að leita sérstaklega að þeim og það verk sé nú hafið.

„Þetta er nú ekki viljandi gert, kerfið er flókið og því fékk barnið reikningana senda á sína kennitölu," segir Magnús en þeir láta svo Landsbankann sjá um innheimtu reikninganna. Að mati Magnúsar þarf að fara í breytingar á kerfinu þannig að þetta endurtaki sig ekki.

„Það er alveg skýrt að börn undir aldri mega ekki stofna til skulda," segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytanda, sem hafði samband við fréttastofu Vísis til þess að árétta að skuldsetning barna samræmist ekki lögum. Frekari upplýsingar um neytendavarnir barna má lesa hér.




Tengdar fréttir

Þriggja ára barn í innheimtu

Þriggja ára gamall drengur búsettur á Eyrabakka hefur fengið senda til sín fimm greiðsluseðla frá heilbrigðisstofnun Suðurlands og þar á meðal innheimtukröfu upp á þrjú hundruð krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×