Innlent

Rólegt hjá lögreglu á Ljósanótt

Frá Hafnargötu í miðbæ Reykjanesbæjar.
Frá Hafnargötu í miðbæ Reykjanesbæjar.

Hátíðin Ljósanótt í Reykjanesbæ var sett í 10. sinn í gær. Að sögn lögreglunnar á suðurnesjum var nokkuð fjölmenni í miðbænum í gærkvöldi og í nótt en skemmtanahöld fóru vel fram.

Einn maður var þó handtekinn eftir að hann ók um ölvaður á móturhjóli. Maðurinn keyrði utan í bíl og stakk af frá slysstað. Maðurinn var síðan handtekinn á heimili sínu og fluttur í fangaklefa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×