Innlent

Skallaði löggu

Konan skallaði lögreglumanninn á lögreglustöðinni.
Konan skallaði lögreglumanninn á lögreglustöðinni.

 Tæplega þrítug kona hefur verið ákærð fyrir að skalla lögreglumann, ljúga til um nafn og hjálpa unglingsstúlku við að komast undan umsjá Barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar. Þá er konan kærð fyrir að hafa tvívegis ekið ökuréttindalaus undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Konan skallaði lögreglumann á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Hann hlaut opið sár á vör og í munnholi. Hún gaf upp nafn og kennitölu systur sinnar við skýrslutöku. Unglingsstúlkunni leyndi hún á hótelherbergi í um tvo sólarhringa.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×