Alþjóðasamningur gegn sjóræningjaveiðum 28. ágúst 2009 17:41
Samkomulag tókst í dag í Róm um nýjan alþjóðasamning um aðgerðir hafnríkja gegn ólöglegum fiskveiðum. Samningurinn felur í sér að aðildarríki hans verða skuldbundin til að loka höfnum sínum fyrir erlendum skipum sem orðið hafa uppvís að því að stunda ólöglegar fiskveiðar. Gerð samningsins er því mikilvægur áfangi í baráttunni gegn ólöglegum fiskveiðum samkvæmt tilkynningu sem utanríkis- og sjávarútvegsráðuneytunum sendu frá sér. Tilkynningin er svohljóðandi: Samkvæmt þjóðarétti hafa ríki fullveldi yfir höfnum sínum og ráða því almennt hvaða erlendum skipum er heimilt að koma til hafnar og njóta þjónustu þar. Markmiðið með hinum nýja alþjóðasamningi er að tryggja að aðildarríki hans muni sem hafnríki grípa til samræmdra aðgerða gagnvart skipum, er orðið hafa uppvís að því að stunda ólöglegar fiskveiðar, samkvæmt lágmarksviðmiðum sem mælt er fyrir um í samningnum. Ísland hefur tekið virkan þátt í baráttunni gegn ólöglegum fiskveiðum og gegndi stóru hlutverki í gerð hins nýja alþjóðasamnings. Beitti Ísland sér meðal annars fyrir því í samningaviðræðunum að aðgerðir hafnríkja fælu ekki aðeins í sér að banna viðkomandi skipum löndun, umskipun og vinnslu aflans, eins og upphafleg samningsdrög gerðu ráð fyrir, heldur jafnframt að synja þeim um hvers konar þjónustu í höfnum sínum, t.d. kaup á olíu og vistum. Að mati íslenskra stjórnvalda var þetta forsenda þess að samningurinn næði því markmiði sínu að koma í veg fyrir ólöglegar fiskveiðar í heiminum. Samningaviðræðurnar, sem fóru fram á vettvangi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í fjórum vikulöngum lotum, hófust sumarið 2008 og lauk sem fyrr segir í dag. Gert er ráð fyrir að samningurinn verði formlega samþykktur og lagður fram til undirritunar á aðalráðstefnu FAO í nóvember nk.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Fleiri fréttir „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Sjá meira