Engin svör um meint gjaldeyrishaftasvindl 28. ágúst 2009 06:00 Fer gjaldeyrinn í réttar hendur? Krónan veikist og Seðlbankinn hefur vísað ótilgreindum fjölda mála til Fjármálaeftirlitsins vegna gruns um að farið sé í kring um gjalderyrishöftin.nordicphotos/getty „
Almennt er það vegna þess að upplýsingar eru viðkvæmar, þær geta verið ónákvæmar og svo gæti birting þeirra skaðað rannsóknarhagsmuni eða valdið öðrum skaða,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri hjá Seðlabankanum, spurður hvers vegna bankinn svarar ekki spurningum Fréttablaðsins um meint brot á gjaldeyrishöftum. Eins og kunnugt er hefur gengi krónunnar veikst umtalsvert á liðnum mánuðum þrátt fyrir gjaldeyrishöft og hagstæðan vöruskiptajöfnuð. „Staða erlendra aðila í krónum hefur lækkað nokkuð undanfarna mánuði, sem bendir til þess að farið sé í kringum höftin í einhverjum mæli,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans 13. ágúst síðastliðinn. Fréttablaðið óskaði eftir svörum frá Seðlabankanum um meint brot á gjaldeyrishöftunum sem vísað hefur verið til Fjármálaeftirlitsins. „Seðlabankinn veitir ekki nákvæmar upplýsingar um það, en bankinn starfar í nánu samstarfi við FME vegna rannsókna á brotum um gjaldeyrismál og reglum settum á grundvelli þeirra og hafa stofnanirnar gert með sér samstarfssamning vegna þessa,“ er svarið þegar spurt er um fjölda slíkra mála. „Seðlabanki Íslands getur ekki veitt upplýsingar um slíkt,“ er svarið þegar spurt er um stöðu þessara mála, þær upphæðir sem um sé að tefla og um hvaða aðila sé að ræða og í hvaða greinum þeir starfi. Afnema á gjaldeyrishöftin í áföngum. Fyrsti áfanginn verður að aflétta höftum af innstreymi gjaldeyris. Ætlunin er að hefja það ferli í október að því gefnu að nauðsynleg skilyrði hafi skapast. Á meðan er unnið að því að sjá til þess að betur sé farið eftir lögunum. „Skref í þá átt var stigið með stofnun Gjaldeyriseftirlits innan Seðlabankans í júní. Frekari skref eru áformuð, en ekkert er hægt að segja um þau á þessu stigi,“ er svar Seðlabankans þegar spurt er hvort í bígerð sé að herða umgjörð og eftirlit með gjaldeyrishöftunum. Fjármálaeftirlitið segir rannsóknirnar flóknar. Sum málin hafi orðið tilefni rannsóknar á öðrum brotum á lögum um gjaldeyrismál. „Vegna þessa er erfitt á þessari stundu að segja nákvæmlega til um fjölda mála sem til rannsóknar eru,“ útskýrir stofnunin. Beita má stjórnvaldssektum við minni háttar brotum en stærri mál fara til lögreglu. Fjármála-eftirlitið svarar því ekki hvort viðurlögum hafi þegar verið beitt. gar@frettabladid.is Már Guðmundsson Seðlabankastjóri
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Fleiri fréttir Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Sjá meira