Sótti innblástur í Rauðhettu 9. september 2009 06:00 Hæfileikarík Andrea hefur starfað við tísku frá því hún lauk menntaskóla. Nú rekur hún sitt eigið hönnunarfyrirtæki. fréttablaðið/arnþór
Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir er flutt heim á ný eftir að hafa lokið námi í fatahönnun við Margrethe-skólann í Kaupmannahöfn. Sem lokaverkefni sitt hannaði Andrea fatalínu sem kallast Rauðhetta Collection og sótti hún innblástur í samnefnt ævintýri. „Ég var búin að ákveða að mig langaði að gera svolítið ævintýralegar flíkur og heillaðist af þessu litla, grimma ævintýri um Rauðhettu. Flíkurnar eru hugsaðar sem hluti af haust- og vetrarlínu þannig ég vann mikið með úlfa- og refaskinn,“ útskýrir Andrea, en hún hefur hannað undir eigin nafni frá árinu 2008. Aldís Pálsdóttir, ljósmyndari í Danmörku, tók myndirnar fyrir Rauðhettu-línuna og segir Andrea samstarfið hafa gengið vel. „Hún er frábær ljósmyndari og það er æðislega gaman að vinna með henni. Hún er mjög fagleg og hæfileikarík og þegar við tókum Rauðhettumyndirnar var hún til dæmis löngu búin að ákveða í hvaða skógi við mundum taka hverja mynd.“ Að sögn Andreu hyggst hún opna verslun við Strandgötu í Hafnarfirði í lok mánaðarins, en hingað til hefur hönnun hennar einungis verið fáanleg á netinu. „Það eru margar konur sem vilja geta mátað og skoðað áður en þær kaupa flíkina. Eftir að ég flutti aftur heim hefur verið stöðugur straumur af viðskiptavinum heim til mín til að máta. Ég sá að það skipti greinilega ekki máli hvar maður er staðsettur og ákvað því að opna verslun við fallega götu í Hafnarfirði,“ segir Andrea. - sm
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira