Innlent

Stjórnmálamenn verða líka skoðaðir

Rannsóknarnefnd um bankahrunið ætlar að skoða hvort stjórnmálamenn hafi fengið sérstaka fyrirgreiðslu í bankakerfinu. Fjölmiðlafólk fær sömu meðferð hjá nefndinni. Stjórnendur bankanna og lykilmenn úr stjórnsýslunni verða yfirheyrðir.

Rannsóknarnefnd um bankahrunið ætlar að velta við hverjum steini í leit sinni að orsökum bankahrunsins. Kennitölum stjórnmálamanna og fjölmiðlamanna á að renna í gegnum bankakerfið.

Páll segist ekki geta upplýst um hversu margir verði yfirheyrðir. Upplýsingar úr einni skýrslutöku geti kallað á aðra og koll af kolli. Verkefnið sé tímafrekt. Hver yfirheyrsla geti tekið allt að sex klukkustundir.

Páll segist þegar vera byrjaður að yfirheyra helstu gerendur, til þess að fá mynd af atburðarrásinni, en upplýsir ekki við hverja hefur verið rætt.






Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×