Össur vill að Bjarni hugsi 12. júlí 2009 19:17
Hótel Valhöll er nú rústir einar eftir brunann í fyrradag. Húsið fuðraði upp á örskömmum tíma og mildi þykir að ekki urðu slys á fólki. Hótelrekstur hefur verið í Valhöll frá árinu 1898 en það var flutt á núverandi stað skömmu fyrir Alþingishátíðina árið 1930. Árið 2005 lét Halldór Ásgrímsson þáverandi forsætisráðherra gera úttekt á húsinu og óskaði eftir tillögum um framtíð hótelsins og hússins á Þingvöllum. Í skýrslu að þeirri úttekt lokinni var sagt að ástand hússins væri lélegt og nokkrar leiðir skoðaðar, m.a. að byggja nýtt hótel á öðrum stað innan þjóðgarðsins. Megin tillagan var þó að húsið yrði allt eða að hluta til rifið og nýtt hús byggt á grunni þess. Bjarni Harðarson fyrrverandi þingmaður sat um tíma í Þingvallanefnd ásamt Össuri Skarphéðinssyni og voru þeir ekki sammála um framtíð hússins Bjarni hnýtir í Össur og segir á bloggsíðu sinni að á föstudag hafi tvennt gerst sem ráðherrann hafi lengi dreymt að yrði að veruleika Valhöll á Þingvöllum hafi brunnið til grunna og Alþingi Íslendinga tekið til umfjöllunar tillögu sem miði að því að leggja af sjálfstætt þjóðríki á Íslandi. „Mér fannst það sorglegt hvernig Bjarni tók til orða og halda það fram að það hlakki í mér yfir þessu. Mér finnst auðvitað mjög dapurlegt hvernig þetta fór. Það er Guðs þakkarvert að það var ekki slys á mönnum. Við Bjarna segi ég að hann ætti reyna að hugsa áður áður en hann skrifar," segir ráðherrann. Alþingi skipar nýja Þingvallanefnd í komandi viku og hefur forsætisráðherra sagt nefndinni verði falið að koma með tillögur um framtíð Valhallar. En fráfarandi nefnd hefur lagt til að á þessum stað rísi aðstaða til að halda minni ráðstefnur bæði á vegum ríkis, Alþingis og einkaaðila. „Sjálfur er ég þeirra skoðunar úr því sem komið er að þá eigi ekki að byggja upp hótel á þessum stað," segir Össur. Vegna stöðunnar í þjóðfélaginu verði einkaaðilum falið þetta verkefni.
Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Erlent Fleiri fréttir Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Sjá meira