Gagnrýni á óvandaða málsmeðferð 2. apríl 2009 13:03 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Bjarni Benediktsson.
Stjórnarskráin er grundvöllur stjórnskipulags íslenska lýðveldisins. Hún mælir annarsvegar fyrir um reglur er fjalla um vald handhafa ríkisvalds, þ.e. löggjafarvalds, framkvæmdavalds og dómsvalds, og hinsvegar um mannréttindi borgaranna og þær takmarkanir og skyldur sem hvíla á handhöfum ríkisvalds gagnvart almenningi í landinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum sem dreift var á blaðamannafundi sem forysta flokksins hélt í morgun. Þar segir ennfremur að til standi að keyra í gegnum Alþingi breytingar á grundvallarlögum lýðveldisins á fáeinum dögum. „Sérfræðingar og samtök sem leitað hefur verið umsagnar hjá í meðförum málsins á Alþingi eru nánast allir á einu máli um það, að málið sé ekki fullunnið, og að tíminn sem gefinn hafi verið til umsagnar og umræðu sé of naumur. Þá blasir við, að ekki hefur farið fram málefnaleg og vönduð umræða um málið í þjóðfélaginu á þeim skamma tíma sem liðinn er frá því frumvarpið var lagt fram." Í tilkynningunni segir að Sjálfstæðisflokkurinn telji engu að síður þörf á að breyta stjórnarskránni með ígrunduðum hætti og hefur lagt fram tillögu í þeim efnum. „Til þess að liðka fyrir slíkum breytingum og skapa svigrúm fyrir vandað verklag, telja sjálfstæðismenn eðlilegt að breyta 79. grein stjórnarskrárinnar, þannig að ekki þurfi að rjúfa þing og fá endurnýjað samþykki Alþingis til þess að stjórnarskrárbreytingar taki gildi." Þá segir að tillaga Sjálfstæðisflokksins kveði á um, að breytingar á stjórnarskrá eigi að leggja fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef farin verður sú leið á yfirstandandi þingi, og endurnýjað samþykki Alþingis fæst eftir kosningar, þá verður hægt að setja hugmyndir um breytingar á stjórnarskrá í vandaðan farveg og leggja þær svo í dóm þjóðarinnar, án þess að rjúfa þing. „Sjálfstæðisflokkurinn er andvígur því að ráðist verði í umfangsmiklar breytingar á stjórnarskránni án þess að tími gefist til vandaðrar málsmeðferðar. Þá gagnrýna sjálfstæðismenn harðlega að ekki hefur verið tekið tillit til sjónarmiða þeirra við endurskoðun stjórnarskrárinnar, heldur þess í stað valinn farvegur ágreinings. Allt stefnir í að rofin verði 50 ára hefð um að leita samstöðu á Alþingi um breytingar á stjórnarskránni. Vakin er sérstök athygli á því, að breytingar á stjórnarskrá hafa enga þýðingu fyrir bráðavandann í efnahagslífinu. Fyrirtækin falla hvert af öðru og heimilin hrópa á aðgerðir. Mikilvægt er að setja mál sem varða risavaxinn vanda fyrirtækja og heimila í forgang og sjálfstæðismenn munu hér eftir sem hingað til greiða fyrir þjóðhagslega brýnum þingmálum. Stjórnarskráin endurspeglar á hverjum tíma grundvallarreglur réttarríkisins. Þær eru mikilvægar á tímum góðæris og hagsældar, en enn mikilvægari á umrótatímum. Það að hreyfa við þessum grundvallarstoðum lagasetningar í landinu eykur enn á óvissuna í íslensku þjóðfélagi, sem leggst þá ofan á óvissuna um efnahagslega velferð þjóðarinnar.Það er hlutverk og skylda stjórnarandstöðu á Alþingi að koma í veg fyrir að í tímaþröng verði ráðist í vanhugsaðar breytingar á stjórnarskránni."
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira