Innlent

Talsvert tjón af völdum reyks

Reykur Íbúi á efri hæð vaknaði við reykjarlykt og gat komið húsráðanda í kjallaranum út.Fréttablaðið/Óskar
Reykur Íbúi á efri hæð vaknaði við reykjarlykt og gat komið húsráðanda í kjallaranum út.Fréttablaðið/Óskar

Talsverðar skemmdir urðu á báðum íbúðum í tvíbýlishúsi í Vestmannaeyjum aðfaranótt föstudags eftir að húsráðandi í kjallara sofnaði út frá eldamennsku.

Kona sem býr á efri hæðinni vaknaði klukkan fjögur um nóttina við reykjarlykt og kom íbúanum í kjallaranum til bjargar. Erfiðlega gekk að vekja hann, en þau voru komin út þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang.

Þegar slökkvilið kom að var enginn eldur í húsinu, sem er þriggja hæða timburhús, en reykræsta þurfti báðar íbúðir.- bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×