Jón Ólafsson hafði betur gegn Bretum 24. október 2009 07:00 Þeir félagar hafa eldað grátt silfur saman í rúman áratug. Nú stendur Jón eftir með gullið og vonast til að þeir Hannes nái lendingu í málinu. „
Ég fagna þessari niðurstöðu og vona að við Hannes finnum sátt og flöt í þessu máli sem verður okkur báðum til sóma,“ segir athafnamaðurinn Jón Ólafsson, sem í fyrradag hafði betur gegn breska ríkinu í meiðyrðamáli gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Málið hófst fyrir áratug þegar Hannes sagði Jón hafa hagnast á glæpastarfsemi í erindi sem hann flutti á ensku árið 1999. Útdrátt úr því setti Hannes á vefsíðu sína sem vistuð var hjá Háskóla Íslands. Jón taldi ummæli Hannesar hafa valdið sér fjárhagslegu tjóni og höfðaði meiðyrðamál gegn honum fyrir breskum dómstólum árið 2004. Dómur féll Jóni í vil í undirrétti árið eftir þar sem Hannes var dæmdur til að greiða Jóni tæpar tuttugu milljónir króna að þávirði í bætur og málskostnað. Hann áfrýjaði málinu til yfirréttar í Lundúnum, sem ógilti dómsniðurstöðuna með þeim rökum að stefna í málinu hefði ekki verið birt Hannesi samkvæmt íslenskum lögum. Hannes mótmælti því jafnframt að dómurinn yrði fullnustaður hér á landi en að kröfu Jóns gerði sýslumaðurinn í Reykjavík fjárnám fyrir dómkröfunni í skuldabréfi sem Hannes hafði fengið vegna sölu á húseign sinni. Samkvæmt þessu hefði Jón þurft að sækja málið gegn Hannesi á ný ytra. Það gerði hann ekki enda taldi hann breska sendiráðið hér hafa gert mistök og stefndi því breska ríkinu. Á fimmtudag hafði Jón svo betur í málinu sem staðið hefur í tíu ár. Hann þarf ekki að sækja málið á ný og greiðir breska ríkið honum þær skaðabætur sem Hannes hefði að öðrum kosti átt að greiða honum. Þær hljóða upp á 65 þúsund pund, jafnvirði þrettán milljóna króna. Óvíst er hver greiðir málskostnað, 25 þúsund pund, sem jafngildir fimm milljónum króna. Ætla má að kostnaður vegna málsins hlaupi á um tugum milljónum króna í heildina. Spurður hvort til enn frekari málaferla kunni að koma segir Jón það ekki alveg komið í ljós. „Ég vona bara að við Hannes náum lendingu í málinu,” segir hann. Hannes Hólmsteinn vildi ekki tjá sig um málið enda hefði hann ekki heyrt af dómsniðurstöðunni fyrr en Fréttablaðið sagði honum hana í gærkvöldi.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Sjá meira