Seljendur kvóta fá leyfi til strandveiða 15. júlí 2009 04:30 smábátar Strandveiðar voru hugsaðar sem frjálsar veiðar til að efla atvinnu í sjávarbyggðum landsins og stuðla að nýliðun í greininni.
Margir þeirra sem hafa fengið leyfi til strandveiða eru gamlir eigendur kvóta. Hafa þeir selt kvótann sinn, haldið skipunum, veiðarfærum og öðru og hafa nú fengið leyfi til strandveiða, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Nokkuð er um það að menn reki jafnvel tvo báta til strandveiða. Einnig eru dæmi þess að menn sem eiga lítinn kvóta hafi veitt veiðiskyldu sína í vor, fengið leyfi til strandveiða og leigi nú út kvótann sinn. Markmið strandveiða var meðal annars að auka nýliðun í greininni. Örn Pálsson Halldór Ármannsson, formaður smábátaeigenda á Reykjanesi, og kvótaeigandi, sem Fréttablaðið hafði samband við, hefur keypt kvóta fyrir nokkra tugi milljóna á undanförnum árum. Nú hafa einhverjir seljendur kvótans fengið leyfi til strandveiða og keppa við Halldór á miðunum. „Auðvitað er þetta svekkjandi að lenda í þessu en það þýðir ekkert fyrir mig að vera fúll út af þessu,“ segir Halldór sem segist stuðningsmaður strandveiðikerfisins þrátt fyrir þetta. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir sambandið hafa fengið nokkrar ábendingar varðandi það að gamlir kvótaeigendur séu á strandveiðum. „Það er algengast að þeir sem selja frá sér kvóta haldi bátunum og þessir aðilar hafa örugglega farið inn í strandveiðikerfið,“ segir Örn. Um 400 bátar hafa leyfi til strandveiða þó að skilyrðin séu ströng. Hafa þarf tilskilin réttindi og bát í haffæru ástandi. Töluverður kostnaður fylgir því að fá leyfi til strandveiða ef maður er nýr í greininni, að sögn Arnar. Því sé lítið um nýliða að veiðum. friðrik j. arngrímsson Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), segir sambandið hafa fengið ábendingar vegna þessa. „Ég held að þetta sé í gangi. Þetta var ljóst frá upphafi og eitt af því sem við bentum á varðandi þessar strandveiðar.“ Frá og með fimmtudeginum verða strandveiðar á svæði A, sem nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Skagabyggðar, bannaðar. Líklegt þótti að viðmiðunaraflinn yrði uppurinn um miðja þessa viku. Gefið var út leyfi til strandveiða í lok júní. Kvótinn var samtals tæplega 4.000 tonn yfir sumartímann en nú þegar hafa veiðst um 1.140 tonn. Mest hefur veiðst á svæði A, um 750 tonn. Ekki náðist í Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra vegna málsins. vidirp@frettabladid.is
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fleiri fréttir Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Sjá meira