Bæjarstjórinn í Grindavík: Óróleikinn auðvitað slæmur 15. júní 2009 16:30 Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík. Myndin er fengin af vef bæjarfélagsins. „
Óróleikinn er auðvitað afar slæmur og það er ekki síst íbúanna og byggðarinnar vegna," segir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík, um stöðu mála í bæjarfélaginu en mikill óróleiki hefur verið í bæjarpólitíkinni í Grindavík undanfarið ár. Síðasta sumar slitnaði upp úr meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar vegna málefnaágreinings og í framhaldinu myndaði Samfylkingin nýjan meirihluta með Framsóknarflokknum. Í vor hrikti í stoðum meirihlutasamstarfsins þegar tekist var á um mannaráðningar í bæjarfélaginu og fyrir skömmu gengu bæjarfulltrúi Frjálslynda flokksins og annar af tveimur bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar í Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Þar með var „meirihlutinn" ekki lengur með meirihluta í bæjarstjórninni. Fyrir helgi undirrituðu bæjarfulltrúar Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknarflokks samkomulag sem felur í sér að fulltrúar Vinstri grænna verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Framsóknar með hlutleysi sínu út kjörtímabilið. „Ég ætla svo sannarlega að vona að svo verði," segir Jóna Kristín aðspurð hvort að meirihlutinn muni starfa út kjörtímabilið. Mörg brýn mál bíði úrlausnar. „Það er líf og kraftur í bæjarfélaginu og atvinnulífið snýst á fullri ferð," segir bæjarstjórinn sem er bjartsýnn á framtíð bæjarfélagsins. „Í Grindavík er gott og fjölskylduvænt samfélag," segir Jóna Kristín.
Tengdar fréttir VG ver minnihlutastjórnina í Grindavík Bæjarfulltrúar Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknarflokksins í Grindavík hafa undirritað samkomulag sem felur í sér að fulltrúar VG verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Framsóknar með hlutleysi sínu út kjörtímabilið. Þar með er þeirri óvissu sem skapaðist þegar að annar af tveimur bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar gekk í VG lokið. 12. júní 2009 16:28 Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira
VG ver minnihlutastjórnina í Grindavík Bæjarfulltrúar Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknarflokksins í Grindavík hafa undirritað samkomulag sem felur í sér að fulltrúar VG verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Framsóknar með hlutleysi sínu út kjörtímabilið. Þar með er þeirri óvissu sem skapaðist þegar að annar af tveimur bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar gekk í VG lokið. 12. júní 2009 16:28